Birgir Leifur er enn með í baráttunni að komast á PGA mótaröðina 20. október 2012 00:51 Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, náði að komast í gegnum 1. stigið af alls þremur á úrtökumótinu fyrir bandarísku PGA mótaröðina í golfi. Birgir Leifur endaði í 16.- 18. sæti á Lake Caroline golfvallarsvæðinu í Mississippi á samtals 3 höggum undir pari vallar en þeir sem voru í 19. sæti sátu eftir með sárt ennið. Birgir lék hringina fjóra á alls 277 höggum en par vallarins er 70 högg. Hann lék hringina fjóra á 69, 71, 68 og 69 höggum. Birgir hefur í nógu að snúast á úrtökumótunum á næstunni því 2. stig úrtökumótsins fyrir PGA mótaröðina fer fram um miðjan nóvember þar sem leikið verður á alls 6 völlum víðsvegar um Bandaríkin. Birgir komst í gegnum 1. stigið á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina sem fram fer 7.- 10. nóvember á fjórum keppnisstöðum á Spáni. Þar er keppnisfyrirkomulagið með svipuðum hætti og á úrtökumótaröðinni fyrir PGA mótaröðina. Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum á eftir að spreyta sig á 1. stigi úrtökmótsins en hann mun leika Florence Country Club dagana 24. - 27. okt.
Golf Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira