Innlent

Ljósin slökkt í Reykjavík vegna jarðarstundarinnar

Jarðarstundin hefst klukkan hálf níu.
Jarðarstundin hefst klukkan hálf níu.
Met verður slegið í kvöld milli 20.30 til 21.30 því þá munu fleiri en 5000 borgir og bæjarfélög í 147 löndum taka þátt í jarðarstundinni eða Earth hour. Viðburðurinn felst í því að njóta myrkurs í 60 mínútur og skapa hugarorku í þágu umhverfisins.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg eru borgarbúar og fyrirtæki hvött til að kveikja ekki rafmagnsljósin, njóta myrkurs og hugsa um velferð jarðarinnar og taka þátt í þessari klukkustund með velferð umhverfisins í huga. Götuljósin í miðborginni verða ekki kveikt fyrr en stundin hefur liðið hjá.

Jarðarstundin er vitundarvakning í umhverfismálum þar sem bæði yfirvöld og borgarar í hverju landi hugsa um að hver og einn geti lagt sitt af mörkum til að efla virðingu gagnvart umhverfinu, sporna gegn sóun og temja sér nægjusemi við nýtingu auðlinda.

Að slökkva rafmagnsljósin sem knúin eru af orkugjöfum jarðar í sextíu mínútur er ekki aðeins táknrænn viðburður heldur raunverulegur sparnaður og sameinar ósk íbúa jarðar um bætta umgengni.

Reykjavíkurborg tekur nú þátt í þessari jarðarstund í fyrsta sinn en fyrsti viðburðurinn var í Sydney í

Ástralíu árið 2007. Hér er um sjálfboðaliðastarf að ræða og allir taka þátt af fúsum og frjálsum vilja.

Reykjavíkurborg hvetur því öll fyrirtæki og stofnanir í borginni til að draga úr lýsingu og hvert heimili til að njóta stundarinnar með því að slökkva rafmagnsljósin þessa sögulegu stund.

Slökkt verður á þekktum byggingum í ýmsum borgum og má nefna Óperuhúsið í Sydney, Eiffelturninn í París, Big Ben, Times Square og Empire State. Reykjavíkurborg stígur nú fyrsta skrefið í þessum viðburði með von um að hann breiðist út um landið og verði árlegur.

Þá mun Ikea hér á landi taka þátt í Jarðarstundinni og slökkva öll ljós verslunarinnar og fyrir utan verslunina samkvæmt tilkynningu frá Ikea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×