Ljósin slökkt í Reykjavík vegna jarðarstundarinnar 31. mars 2012 09:43 Jarðarstundin hefst klukkan hálf níu.
Met verður slegið í kvöld milli 20.30 til 21.30 því þá munu fleiri en 5000 borgir og bæjarfélög í 147 löndum taka þátt í jarðarstundinni eða Earth hour. Viðburðurinn felst í því að njóta myrkurs í 60 mínútur og skapa hugarorku í þágu umhverfisins. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg eru borgarbúar og fyrirtæki hvött til að kveikja ekki rafmagnsljósin, njóta myrkurs og hugsa um velferð jarðarinnar og taka þátt í þessari klukkustund með velferð umhverfisins í huga. Götuljósin í miðborginni verða ekki kveikt fyrr en stundin hefur liðið hjá. Jarðarstundin er vitundarvakning í umhverfismálum þar sem bæði yfirvöld og borgarar í hverju landi hugsa um að hver og einn geti lagt sitt af mörkum til að efla virðingu gagnvart umhverfinu, sporna gegn sóun og temja sér nægjusemi við nýtingu auðlinda. Að slökkva rafmagnsljósin sem knúin eru af orkugjöfum jarðar í sextíu mínútur er ekki aðeins táknrænn viðburður heldur raunverulegur sparnaður og sameinar ósk íbúa jarðar um bætta umgengni. Reykjavíkurborg tekur nú þátt í þessari jarðarstund í fyrsta sinn en fyrsti viðburðurinn var í Sydney í Ástralíu árið 2007. Hér er um sjálfboðaliðastarf að ræða og allir taka þátt af fúsum og frjálsum vilja. Reykjavíkurborg hvetur því öll fyrirtæki og stofnanir í borginni til að draga úr lýsingu og hvert heimili til að njóta stundarinnar með því að slökkva rafmagnsljósin þessa sögulegu stund. Slökkt verður á þekktum byggingum í ýmsum borgum og má nefna Óperuhúsið í Sydney, Eiffelturninn í París, Big Ben, Times Square og Empire State. Reykjavíkurborg stígur nú fyrsta skrefið í þessum viðburði með von um að hann breiðist út um landið og verði árlegur. Þá mun Ikea hér á landi taka þátt í Jarðarstundinni og slökkva öll ljós verslunarinnar og fyrir utan verslunina samkvæmt tilkynningu frá Ikea.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Erlent Fleiri fréttir Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Sjá meira