Staðreynd að ráðist er á konur í bílastæðahúsum 27. apríl 2012 12:00 Sólveig Arnardóttir
Sérmerkt kvennabílastæði eru svar við þeirri staðreynd að ráðist er á konur í bílastæðahúsum. Þetta segir íslensk leikkona sem undrast neikvæða umræðu um bílastæðin. Mikil umræða skapaðist um bílastæðakjallara Hörpu í gær vegna sérmerktra bílastæða fyrir konur og fatlaða. Margir sögðu slík stæði vera lítillækandi fyrir konur og ekki í anda kvennréttindabaráttunnar. Sólveig Arnarsdóttir leikkona hefur undrast þessi viðbrögð. „Ég held að maður hljóti strax að þurfa að spyrja að því: Afhverju eru sérmerkt kvenna bílastæði í langflestum löndum? Ég held að það sé ekki vegna þess að konur séu alltaf á svo háum hælum að þær geti ekki skrönglast frá ysta og myrkasta horni bílastæðisins, heldur vegna þess að það er því miður staðreynd að konur eru í meiri hættu á að það sé ráðist á þær." Hún segist hafa búið erlendis í mörg ár þar sem svona kvennabílastæði voru sjálfsagður hlutur í öllum bílastæðahúsum einfaldlega til að vernda konur. „Ég get alveg sagt að ég var oft afskaplega þakklát þegar ég bjó úti að geta lagt nálægt inngangi. Því maður finnur fyrir því sem kona að það er oft óþægilegt að vera ein á ferð og manni finnst maður ekki vera óhultur. Hver sem er getur stokkið fram úr dimmu skúmaskoti," segir hún.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Sjá meira