Þingmaður undrandi 1. maí 2012 13:00 Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur Stjórnlagaráðs að breytingum á stjórnarskránni mun fara fram í haust samkvæmt breytingartillögu sem lögð var fram á Alþingi í gær. Þingmaður minnihlutans undrast hversu langan tíma það tók að taka ákvörðun um feril málsins. Það var meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis auk Guðmundar Steingrímssonar og Margrétar Tryggvadóttur sem lögðu fram breytingatillöguna á Alþingi í gær en í henni er gert ráð fyrir að þjóðaratkvæðagreiðsla fari í síðasta lagi fram 20.október. Upphaflega stóð til að hún færi fram samhliða forsetakosningum en ekki náðist samkomulag um það á Alþingi í tæka tíð í lok mars. Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins undrast á því hversu langan tíma það tók meirihluta nefndarinnar að ákveða hvaða leið skyldi vera farin í þessu máli. „...vegna þess að það var alveg ljóst í lok mars, að ef þau ætluðu að láta málið ganga áfram þá þyrftu þau að skipta um kúrs og það kom mér á óvart að það skyldi taka heilan mánuð að ákveða hvaða leið þau færu í því sambandi," segir Birgir. Hann segir bæði kosti og galla við það að halda þjóðaratkvæðagreiðsluna eina og sér í haust en ekki samfara forsetakosningum. Þá sé minni hætta að umræða í aðdraganada kosninga smitist saman en á móti kemur aukinn kostnaður og mögulega lakari kjörsókn. Andstaða sjálfstæðismanna sé hins vegar áfram sú sama, að ekki sé tímabært að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrren búið er að vinna tillögurnar í þinginu. „Við teljum að það sé rétt að gera breytingar á stjórnarskrá en þarna er verið að fara með málsmeðferðina út og suður," segir Birgir. Annarri umræðu um málið var frestað í lok mars og verður henni nú haldið áfram á næstu dögum þar sem breytingartillagan verður rædd og að lokum greidd atkvæði um hana.
Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Sjá meira