Töpuðu 50 milljörðum á tveggja ára tímabili 14. júní 2012 12:06
Sparisjóðurinn í Keflavík tapaði 50 milljörðum króna á árunum 2008-2010. Á sama tíma jukust innlán hans um tugi milljarða. Rekstrarkostnaður sjóðsins árið 2009, meðal annars launagreiðslur, var 2,3 milljarðar. Sparisjóðurinn í Keflavík jók innlán sín um 8,5 milljarða króna á árinu 2009. Áður höfðu þau aukist um 9,8 milljarða króna á síðustu mánuðum ársins 2008. Alls jukust þau um tæp 30 prósent frá því skömmu fyrir bankahrun og fram til loka árs 2009. Á þeim tíma uppfyllti sjóðurinn ekki lágmarkskröfur Fjármálaeftirlitsins (FME) um eigið fé og starfaði því á undanþágu. Kostnaður vegna innlánasöfnunarinnar lendir á skattgreiðendum. Alls tapaði sparisjóðurinn 46,6 milljörðum króna á árunum 2008 til 2010. Þetta kemur fram í áður óbirtum drögum að ársreikningum Sparisjóðsins í Keflavík sem Fréttablaðið hefur undir höndum og greinir frá í dag. Í drögum að ársreikningi sparisjóðsins fyrir árið 2009 kemur fram að innlán hans hafi verið orðin 63,2 milljarðar króna í lok þess árs. Þau höfðu þá aukist um tæpa 20 milljarða króna frá miðju hrunárinu 2008. Á sama tíma og sjóðurinn jók við innlán sín rýrnaði virði eigna hans um 17 milljarða króna auk þess sem hann greiddi um 2,3 milljarða króna í laun, launatengd gjöld og "annan rekstrarkostnað," að því er fram kemur í Fréttablaðinu. Sparisjóðurinn í Keflavík starfaði fram í apríl 2010 þegr nýr sparisjóður, SpKef var stofnsettur. Samkvæmt drögum að ársreikningi tapaði sjóðurinn 11,9 milljörðum króna á því ári. Eins og komið hefur fram er kostnaður skattgreiðenda vegna Spkef um 26 milljarðar króna. Fréttastofan hefur ítrekað reynt að ná í Geirmund Kristinsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóra Sparisjóðsins í Keflavík, án árangurs.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrsgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrsgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira