Gengistryggð lán milljónum lægri en verðtryggðu lánin 28. mars 2012 11:00
Kostnaður við að færa verðtryggð lán Íbúðalánasjóðs, frá árunum 2002 fram að hruni, niður að stöðunni eins og hún væri hefðu verðbólgumarkmið Seðlabankans staðið nemur 67,2 milljörðum króna. Þetta kemur fram í útreikningum sem KPMG hefur unnið fyrir Helga Hjörvar, formann efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Fyrirtækið reiknaði einnig þróun lána eftir því hvort þau væru verðtryggð eða gengislán. Tíu milljóna króna verðtryggt lán sem tekið var í júní 2002 stóð í 15,323 milljónum króna um síðustu áramót. Eftir dóm Hæstaréttar stendur tíu milljóna króna gengislán, tekið á sama tíma, í 7,974 milljónum króna. Sá sem tók verðtryggt lán skuldar því um 7,3 milljónum krónum meira en sá sem tók gengislánið. Helgi hefur talað fyrir því að stjórnvöld fjármagni almenna skuldaniðurfærslu með því að skattleggja séreignarlífeyrissparnað strax. Í skýrslu KPMG kemur fram að heildartekjur af því hefðu í lok árs 2011 numið 76,6 milljörðum króna, miðað við lægsta skattþrep (37,35%) og 94,8 milljörðum króna miðað við hæsta skattþrep (46,24%). Miðað við hámarksútsvar eiga sveitarfélögin 29,7 milljarða af þeirri upphæð. Í skýrslunni er hins vegar gengið út frá því að hluturinn renni ekki án skilyrða eða takmarkana til sveitarfélaganna. Til þess eru nefndar þrjár leiðir: útsvarið verði greitt í formi skuldabréfs sem byrjað verði að borga af eftir 2014, útsvarið verði greitt út samhliða því að lífeyrisþegar taki út eign úr séreignarsjóðum, eða að Alþingi samþykki með lögum að heildarfjárhæðin renni í ríkissjóð og þá ekkert til sveitarfélaganna. Helgi segir þá niðurstöðu ólíklegasta. Hugmyndirnar hafa verið kynntar fyrir þremur þingflokkum og Helgi segir þær innlegg í umræðu um skuldamál. „Sá mikli munur sem er á stöðu fólks með verðtryggð íslensk húsnæðislán annars vegar og hinna sem tóku gengistryggð lán kallar á að komið verði til móts við fólk með verðtryggð lán."- kóp / sjá síðu 10
Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Innlent Fleiri fréttir „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Sjá meira