Sonur Doc Rivers ætlar að fara strax í NBA-deildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. mars 2012 06:00 Austin Rivers Mynd/AFP
Austin Rivers, sonur Doc Rivers þjálfara Boston Celtics, gæti verið farinn að spila á móti pabba sínum á næsta tímabili í NBA-deildinni. Rivers hefur ákveðið að hætta í Duke-háskólnum eftir aðeins eitt ár og skrá sig í nýliðaval NBA-deildarinnar í júní. Austin Rivers vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína í háskólaboltanum í vetur en hann skoraði 15,5 stig að meðaltali með Duke-liðinu. Hann varð aðeins þriðji nýliðinn í sögu skólans sem nær því að vera stigahæsti leikmaður liðsins. Stærsta stund Austin Rivers í vetur var þegar hann tryggði Duke dramatískan sigur á erkifjendum sínum í Norður-Karólínu í febrúar. Hann skoraði þá sigurkörfuna rétt áður en leiktíminn rann út og var alls með 29 stig í leiknum. Corey Maggette (1999), Luol Deng (2004) og Kyrie Irving (2011) eru allt strákar úr Duke-háskólanum sem hafa hætt eftir aðeins eitt ár en það er ekki búist við að Austin Rivers fari fyrr en í kringum 18. valrétt. Draft Express hefur sett upp sína spá fyrir nýliðavalið og þar mun Denver Nuggets nota 17. valréttinn til að velja Austin Rivers. Boston á 18. valréttinn samkvæmt spánni og hver veit nema að það fari svo að pabbinn velji strákinn sinn í júní.
NBA Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Sport „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti Ein stærsta stjarna NFL fær að heyra það: Þú ert feitur Sport Fleiri fréttir Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Sjá meira