Forráðamenn Miami Heat hafa áhyggjur af stjörnunni LeBron James sem er meiddur á fingri og getur verið að fingurinn hafi farið úr lið.
James meiddist í leiknum gegn Indiana. Þá lét hann teipa puttann og kláraði leikinn. Hann var síðan með kælingu á honum eftir leikinn.
James gat ekki æft með liðinu í gær vegna meiðslanna og ekki hefur enn verið gefið út hversu alvarleg meiðslin eru.
Leikmaðurinn hefur átt flott tímabil með 26,7 stig, 6,6 stoðsendingar og 8,3 fráköst að meðaltali í leik.
