Þjóðverja þyrstir í skrif Ragnars Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. mars 2012 19:44 Ragnar Jónasson er kampakátur yfir viðtökum Myrknættis.
Þýski útgáfurisinn Fischer Verlage hefur tryggt sér útgáfuréttinn á íslensku bókinni Myrknætti eftir Ragnar Jónasson, rithöfund. Bókaforlagið gaf líka út Schneebraut, sem var valin ein af fjórum bestu bókum haustsins 2011 af þýsku tímariti. Ragnar kveðst afar ánægður með gang mála í Þýskalandi. „Viðtökur Snjóblindu í Þýskalandi hafa farið fram úr mínum björtustu vonum og það er mjög ánægjulegt að útgefendurnir hafi ákveðið að tryggja sér réttinn á Myrknætti líka. Siglufjörður kemur nokkuð við sögu í báðum þessum bókum og nú er ég að vinna að þriðju bókinni sem tengist því sögusviði. Allar þessar bækur standa sjálfstætt en mynda einskonar heild sem siglfirsk glæpatrílógía," segir Ragnar. Ragnar á rætur að rekja til Siglufjarðar og fleiri í hans fjölskyldu hafa gert staðnum skil í ritverkum. „Afi minn og alnafni skrifaði mikið um sögu Siglufjarðar og það er skemmtilegt að feta með þessum hætti í fótspor hans, þótt nálgunin sé mjög ólík," segir Ragnar. Í vor hefur Ragnari svo boðist að taka þátt í pallborðsumræðum á stórri ráðstefnu glæpasagnahöfunda í Bristol, Crimefest, en þá ráðstefnu sækja að þessu sinni ýmsir stórmeistarar úr greininni, svo sem P.D. James, Fredrick Forsyth og Lee Child. Ragnar og Yrsa Sigurðardóttir verða fulltrúar íslenskra höfunda að þessu sinni en Ragnar tekur þatt i umræðum undir yfirskriftinni Death in a Cold Climate - Scandinavians. „Það verður forvitnilegt að fá að ræða um skandinavískar glæpasögur á ráðstefnunni, og reyna að átta sig á því hvers vegna þessi tegund bóka nýtur vinsælda um allan heim. Ég held að það sé ekki nein einföld skýring á því, en framandi sögusviðið spilar örugglega stórt hlutverk. Áður voru morð í skáldsögum framin á enskum sveitasetrum en núna hefur íslenska sveitin tekin við," segir Ragnar.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Erlent Fleiri fréttir Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Sjá meira