Telur ójafnræði viðskiptavina Dróma ólíðandi og hyggst taka málið upp Þorbjörn Þórðarson skrifar 20. nóvember 2012 18:54 Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður.
Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, segir það óskiljanlegt að útlán viðskiptavina SPRON hafi ekki flust með innlánum í Arion banka á sínum tíma. Hann segir ójafnræðið sem viðskiptavinir Dróma þurfa að þola með öllu ólíðandi og hyggst taka málið upp á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Við sögðum frá því í fréttum okkar í gær að Arion banki væri langstærsti kröfuhafi Dróma hf. en 78 prósent allra skulda Dróma eru við bankann. Skýringin á því er sú að þegar innlán SPRON voru flutt í Arion banka gaf Drómi út skuldabréf í staðinn sem endurgjald fyrir innlánin sem voru flutt yfir. Viðskiptavinir SPRON lentu því í raun á tveimur stöðum. Voru með sparifé sitt hjá Arion banka en útlán hjá Dróma. Margir þeirra eru ósáttir við að hafa ekki notið sömu kjara og viðskiptavinir stóru bankanna við úrlausn sinna mála hjá Dróma og kvartanir hafa hrannast upp hjá umboðsmanni skuldara. Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður segir það ójafnræði sem viðskiptavinir Dróma hafi þurfta að þola með öllu ólíðandi. Þá telur hann óskiljanlegt að útlánsafn SPRON hafi ekki verið flutt með innlánum yfir í Arion banka á sínum tíma. Guðlaugur Þór vill vinda ofan þeirri stöðu sem viðskiptavinir Dróma eru í og hefur óskað eftir fundi í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis til þess að fara yfir málið.Óþolandi ójafnræði „Þetta ójafnræði er óþolandi og það hlýtur að vera verkefni nefndarinnar að fara yfir hvað er hægt að gera í þessu. Hvað við getum gert til að vinda ofan af þessu vegna þess að það fólk sem verður fyrir þessu hefur ekkert gert af sér annað en að velja eina fjármálastofnun fram yfir aðra á sínum tíma. Þá hljótum við að kalla eftir upplýsingum hverjir tóku ákvörðun um þetta og hvers vegna," segir Guðlaugur Þór. Arion banki er með veð í öllum eignum Dróma og því í ágætri stöðu til að beita sér í málinu. Það hefur bankinn ekki gert með beinum hætti en stjórnendur bankans hafa lýst því yfir að þeir telji þetta óheppilegt.Hefur enn áhuga á íbúðalánum „Strax í upphafi þegar Arion banki tók við innlánum viðskiptavina SPRON lýsti bankinn yfir áhuga á að taka einnig við íbúðalánum þeirra. Áhugi bankans á að taka yfir lán Dróma hefur ekki breyst og hefur bankinn beitt sér í málinu bæði gagnvart stjórnvöldum og gagnvart Dróma. Sú staðreynd að Arion banki er með veð í eignum Dróma gefur bankanum ekki heimild til að taka yfir lánasafnið, um slíka yfirtöku þarf að semja. Hingað til hefur hins vegar ekki tekist að skapa samningsgrundvöll, hvað varðar kjör og skilmála, fyrir yfirtöku bankans á lánasafninu," segir Haraldur Guðni Eiðsson, talsmaður Arion banka. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira