Bankarnir hagnast um 44,2 milljarða á níu mánuðum Magnús Halldórsson skrifar 29. nóvember 2012 12:15
Bankarnir, Arion banki, Landsbankinn og Íslandsbanki, hafa nú allir kynnt afkomu sína fyrir þriðja ársfjórðung, og liggja upplýsingar um rekstrarafkomu fyrir fyrstu níu mánuði ársins því fyrir. Samanlagður hagnaður bankanna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins nemur 44,2 milljörðum króna, en Arion banki hagnaðist um 14,5 milljarða, Landsbankinn um 13,5 milljarða og Íslandsbanki, sem kynnti uppgjör sitt í morgun, um 16,2 milljarða. Eigið fé bankanna allra hefur aukist nokkuð á þessu ári og nemur það um 480 milljörðum króna, eða um 30 prósentum af árlegri landsframleiðslu Íslands, sem var 1.620 milljarðar í fyrra. Það telst hátt hlutfall í alþjóðlegum samanburði, en stærð bankakerfisins íslenska er nú tæplega tvöföld á við árlega landsframleiðslu Íslands. Til samanburðar má nefna að stærð bankakerfisins íslenska fyrir hrunið í október 2008 var um tíföld á við árlega landsframleiðslu Íslands. Nokkur óvissa er þó enn fyrir hendi, þegar kemur gengistryggðum lánum bankanna, sem gæti haft áhrif á eiginfjárstöðu þeirra. Fjármálaeftirlitið hefur þó sagt að óvissa um gengistryggðu lánin ógni ekki stöðu bankanna. Landsbankinn sker sig nokkuð úr þegar kemur að afkomu á síðustu þremur mánuðum þriðja ársfjórðungs, þ.e. í júlí, ágúst og september, en hagnaður bankans nam þá tæplega 1,7 milljörðum króna, sem er mun minna en á fyrri helmningi ársins. Skýrist þetta öðru fremur af virðisrýrnun lánasafns og auknum rekstrarkostnaði vegna gjaldfærslu í tengslum við starfslok og hagræðingaraðgerðir. Í Fjármálastöðugleika, riti Seðlabanka Íslands um álitamál er tengjast fjármálastöðugleika íslenska hagkerfisins, hefur einnig verið fjallað ítarlega um skuldir nýja Landsbankans við gamla Landsbankann í erlendri mynt, en Seðlabankinn telur nauðsynlegt að endursemja um þessar skuldir, og lengja í lánum. Eins og mál standa nú þarf hinn endurreisti Landsbanki að greiða af skuldabréfum upp á rúmlega 200 milljarða, í erlendri mynt, sem eru á gjalddaga frá 2015 til 2018.
Mest lesið Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Sjá meira