Gagnrýni

Alki í afneitun

Elísabet Brekkan skrifar
Höfundur verksins Blakkát er Björk Jakobsdóttir og leikur hún einnig aðalhlutverkið.
Höfundur verksins Blakkát er Björk Jakobsdóttir og leikur hún einnig aðalhlutverkið. Fréttablaðið/stefán
Blakkát



Höfundu r: Björk Jakobsdóttur.

Leikarar: Björk Jakobsdóttir, Hjörtur Jóhann Jónssond og Magnús Guðmundsson.

Leikstjóri: Edda Björgvinsdóttir

Gaflaraleikhúsið

Björk Jakobsdóttir bregður sér í gervi dagdrykkjukonu í leikriti sínu Blakkát sem frumsýnt var nýlega í Hafnarfirði. Áhorfendur fögnuðu og var ærin ástæða til.

Andskotinn hvar í fjandanum er ég og hvar var ég í gær, líklega á árshátíð, vá maður ég er á hótel Örk? Eitthvað á þessa leið hugsar eða tuldrar hin sídrukkna Bogga þegar hún vaknar á hótelherbergi sem hún kannast ekki við, en útsýnið leiðbeinir henni. Í bólinu liggur ókunnur maður og ekki nóg með að hann sé ókunnur heldur er hann einnig steindauður.

Björk fléttar saman þeim þáttum og einkennum sem upp koma þegar manneskja verður fyrir óminnishegranum. Borghildur Sveinsdóttir er í ágætu starfi hjá Stjórnarráðinu, þar sem hún hefur unnið í 30 ár.

Það kemur fram þegar á leikinn líður að yfirmenn og samstarfsfólk hafa verið umburðarlynd þó svo að hún vilji ekki kannast við það. Björk hefur engu gleymt af því sem einkennir lyginn alka, og eins tekst henni að vefja inn á skemmtilegan hátt mörgum atriðum sem einkenna góðan farsa þannig að útkoman er skemmtileg.

Að vísu hefði hún mátt draga aðeins úr masi sínu við salinn, en það er einhver lenska núna að hálfstökkva úr hlutverkum sínum eða hljóta allt í einu meðvitund um hið leikhúslega í samhenginu. Annars var ferðin fumlaus.

Leikmyndin er skondin, það sést yfir í nágrenni Hveragerðis og myndbandanotkun er smellin, þar sem hin nútímalega Bogga hafði notað símann sinn til myndatöku og myndbandagerðar og var myndum úr símanum varpað upp á vegg að baki hennar. Þetta var náttúrulega til þess að mórallinn yfir framferðinu kvöldið áður varð verri og hún pantaði sér fleiri og fleiri drykki.

Samvinna þeirra Bjarkar og Eddu skilar sér í hröðum leik og endurlit persónunar Borghildar var vægast sagt nokkuð sorgleg saga en eins og alkóhólista í afneitun er siður greip hún til einhverrar lygar til að réttlæta hegðun sína.

Af hverju er ungi maðurinn uppi í rúmi hjá henni? Spurningunni veltur hún fyrir sér og ímyndar sér að hún hafi átt dásamlega nótt með dansi og bólferð og er það sýnt með leikrænni tjáningu þeirra.

Magnús Guðmundsson leikur þennan unga mann fimlega. Hjörtur Jóhann Jónsson leikur þjóninn á hótelinu, sem á stundum í erfiðleikum með að ná sambandi við Boggu. Einnig leikur hann soninn unga sem er orðinn þreyttur og hvekktur á hinni sídrukknu móður.

Uppbygging verksins er góð og tónlistar- og dansatriðin sem spretta upp eru fjörug og skemmtileg. Burtséð frá allri skemmtuninni er grafalvarlegur undirtónn en aldrei nein predikun nema sú sem hver og einn finnur hjá sjálfum sér.

Niðurstaða: Góð kvöldskemmtun í Galfaraleikhúsinu í Hafnarfirði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×