Segja nauðasamninga ekki ógna stöðugleika Magnús Halldórsson skrifar 29. október 2012 20:05
Lögmenn stærstu kröfuhafa Glitnis og Kaupþings segja útgreiðslu á mörg hundruð milljörðum króna til þeirra í erlendri mynt eftir að nauðasamningar hafa verið samþykktir, ekki ógna stöðugleika hér á landi. Útflæði á krónueign í eigu kröfuhafa verður stýrt í samræmi við reglur Seðlabanka Íslands. Íslensk stjórnvöld hafa á undanförnum vikum verið að afla upplýsinga um hvaða áhrif nauðasamningar við kröfuhafa Glitnis og Kaupþings geta haft á íslenskan efnahag. Í minnisblaði sem að lögmenn kröfuhafa tóku saman fyrir Alþingi kemur fram að staða íslenska hagkerfisins styrkist frekar en hitt með nauðasamningum við kröfuhafana. Í minnisblaðinu segir meðal annars að lausum eignum í erlendum gjaldeyri, sem ekki eru bundnar gjaldeyrishöftum, verði ráðstafað til kröfu, en í hópi þeirra eru erlendir vogunar- og skuldabréfasjóðir stærstir. Í minnisblaðinu segir að útgreiðslan muni hafa jákvæð áhrif á hreina gjaldeyrisstöðu íslenska þjóðarbúsins þar sem erlendur gjaldeyrir verður greiddur til íslenskra kröfuhafa, sem eru þó í miklum minnihluta í kröfuhafahópnum. Þrotabú Kaupþings og Glitnis eru tröllvaxin í samanburði íslenska hagkerfið, en heildareignir eru metnar á ríflega 1.700 milljörðum króna, en landsframleiðsla nemur ríflega 1.600 milljörðum króna. Lausaféð, sem kröfuhafar fendur í sínar hendur þegar nauðasamningur hefur verið samþykktur, er gríðarlega mikið. Þrotabú Glitnis á nú 322 milljarða króna í erlendri mynt, tæplega 30 í íslenskum krónum, eða samtals 352 milljarða króna í reiðufé. Þrotabú Kaupþings á 353 milljarða króna í erlendri mynt, ríflega 19 milljarða í krónum eða samtals 372 milljarða króna. Eða samtals um 725 milljarðar króna. Seðlabankinn fylgist grannt með gangi mála, og hefur gefið það skýrt til kynna, að engin áhætta verði tekin þegar kemur að nauðasamningum. Kappkostað verði að hafa almannahag að leiðarljósi, við útgreiðslu íslenskra króna í erlendri eigu. Í minnisblaði lögmanna kröfuhafana kemur skýrt fram að þeir vilji ekki eiga banka hér á landi til framtíðar, og leiti því að góðum framtíðar eigendum að Íslandsbanka og Arion banka, sem verða stórar eignir sem eftir sitja þegar laust fé hefur verið greitt út búunum.
Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira