Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefur náð sátt við Landsbankann vegna einkalífeyrissjóðs, sem hann stofnaði fyrir hrun, og flutt vörslu sjóðsins til MP banka. Meðal eigna lífeyrissjóðsins eru skuldabréf í rússneska olíurisanum Gazprom.
Sigurjón Þ. Árnason stofnaði sinn eigin lífeyrissjóð skömmu á vordögum 2008, nokkrum mánuðum fyrir bankahrunið.
Öll lífeyrisréttindi Sigurjónssem áður höfðu verið í Íslenska lífeyrissjóðnum, voru flutt í einkalífeyrissjóð hans í apríl 2008 í vörslu Landsbankans.
Eftir hrun vildi bankinn slíta lífeyrisjóðnum að kröfu Fjármálaeftirlitsins en Sigurjón hefur nú náð sátt við bankann og FME og flutt sjóðinn í vörslu MP banka.
Í hnotskurn snýst málið um að Landsbankinn vildi leysa sparnaðinn upp, að kröfu Fjármálaeftirlitsins, sem taldi fyrirkomulagið ganga í berhögg við lög. Það sem vakti fyrst athygli eftirlitsaðila voru lánveitingar sem lífeyrissjóður Sigurjóns veitti honum sjálfum með tveimur veðskuldabréfum sem tryggð voru í húsinu hans, samtals upp á 70 milljónir króna, í nóvember 2008.
Þegar Landsbankinn reyndi að slíta lífeyrissjóðnum höfðaði Sigurjón mál á hendur bankanum til viðurkenningar á lögmæti sjóðsins og krafðist jafnframt afhendingar á sparnaðinum.
Það mál tapaðist í Héraðsdómi Reykjavíkur og var áfrýjað. Sigurjón felldi málið hins vegar niður áður en málið kom til kasta Hæstaréttar vegna áðurnefndrar sáttar sem hann náði við Landsbankann og FME. Sáttin fólst í því að hann fékk lífeyrissjóðinn fluttan í vörslu MP banka í annars konar sparnarleið sem FME gat sætt sig við.
Fram kom við aðalmeðferð í máli Sigurjóns á hendur Landsbankanum fyrr á þessu ári að Sigurjón hefði breytt samsetningu sjóðsins og keypt skuldabréf í erlendri mynt, aðallega evrum, í rússneska olíurisanum Gazprom og orkufyrirtækinu TAQA frá Abú Dabí í ágúst 2008 og þannig losað sig við lífeyrissparnað í krónum, rétt fyrir hrun.
Þá fékk hann um svipað leyti 200 milljónir króna frá Landsbankanum sem hann setti beint í lífeyrissjóðinn, en um var að ræða áunnin samningsbundin réttindi. Í september í fyrra var jafnvirði 566 milljóna króna í lífeyrissjóðnum, að því er fram kom við aðalmeðferð máls hans á hendur Landsbankanum.
Samkvæmt heimildum fréttastofu var lífeyrissjóðurinn fluttur í vörslu MP banka án þess að breytingar yrðu á samsetningu eigna sjóðsins. thorbjorn@stod2.is
Sigurjón fékk einkalífeyrissjóðinn fluttan í MP banka
Þorbjörn Þórðarson skrifar

Mest lesið

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Búast við tveggja milljarða tapi
Viðskipti innlent

„Þær eru bara of dýrar“
Neytendur

Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur
Viðskipti innlent

Orri til liðs við Íslandsbanka
Viðskipti innlent

Samruninn muni taka langan tíma
Viðskipti innlent


Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair
Viðskipti innlent


Auður leiðir nýja samsteypu á íslenskum markaði
Viðskipti innlent
Fleiri fréttir
