Gengi krónunnar veikist töluvert 24. ágúst 2012 11:52
Töluverð veiking hefur orðið á gengi krónunnar á síðustu dögum samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Nú þegar þetta er ritað (kl. 10:10) stendur gengisvísitala krónunnar í rúmum 211 stigum en var rúm 207 stigu fyrir viku síðan. Jafngildir þetta veikingu upp á 1,8% m.v. gengisvísitöluna. Af helstu viðskiptamyntum hefur gengi krónunnar veikst einna mest gagnvart evrunni. Kostar evran nú rúmar 151 krónur á innlendum millibankamarkaði og hefur hækkað í verði fyrir landann um 2,1% á vikutíma. Krónan hefur einnig átt á brattann að sækja gagnvart sterlingspundinu sem og Bandaríkjadollar, og er pundið nú á rúmlega 191 krónu og dollarinn á tæplega 121 krónu. Lækkun á gengi krónunnar gagnvart pundinu á tímabilinu er um 1,5% en gagnvart dollaranum 0,8%. Á þessum tíma í fyrra var gengi krónunnar að styrkjast, en sú þróun hélt áfram allt til loka október í fyrra. Þá þróun mátti einna helst rekja til árstíðarbundinnar sveiflu í gjaldeyrisstraumum vegna ferðaþjónusta og mikilla gjaldeyristekna sjávarútvegs á haustdögum. Sveiflan nú í sumar hefur verið mun sterkari en í fyrra og er ljóst að árstíðaráhrifin hafa ekki vera ein á ferð, heldur aðrir kraftar sem koma þar við sögu og má reikna með að þeir séu á ferðinni nú. Hreyfing krónunnar nú er athyglisverð þar sem svo snarpar veikingarhrinur hafa síðustu ár aðeins komið fram á vetrarmánuðum, þegar gjaldeyrisflæði tengt vöru- og þjónustujöfnuði hefur verið með óhagstæðasta móti og við hefur bæst útflæði tengt vaxtagreiðslum og/eða gjalddögum lána.
Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Eigandi Vélfags talinn tengjast rússnesku leyniþjónustunni Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira