Viðskipti innlent

Gengi krónunnar veikist töluvert

Töluverð veiking hefur orðið á gengi krónunnar á síðustu dögum samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Nú þegar þetta er ritað (kl. 10:10) stendur gengisvísitala krónunnar í rúmum 211 stigum en var rúm 207 stigu fyrir viku síðan.

Jafngildir þetta veikingu upp á 1,8% m.v. gengisvísitöluna. Af helstu viðskiptamyntum hefur gengi krónunnar veikst einna mest gagnvart evrunni. Kostar evran nú rúmar 151 krónur á innlendum millibankamarkaði og hefur hækkað í verði fyrir landann um 2,1% á vikutíma. Krónan hefur einnig átt á brattann að sækja gagnvart sterlingspundinu sem og Bandaríkjadollar, og er pundið nú á rúmlega 191 krónu og dollarinn á tæplega 121 krónu. Lækkun á gengi krónunnar gagnvart pundinu á tímabilinu er um 1,5% en gagnvart dollaranum 0,8%.

Á þessum tíma í fyrra var gengi krónunnar að styrkjast, en sú þróun hélt áfram allt til loka október í fyrra. Þá þróun mátti einna helst rekja til árstíðarbundinnar sveiflu í gjaldeyrisstraumum vegna ferðaþjónusta og mikilla gjaldeyristekna sjávarútvegs á haustdögum.

Sveiflan nú í sumar hefur verið mun sterkari en í fyrra og er ljóst að árstíðaráhrifin hafa ekki vera ein á ferð, heldur aðrir kraftar sem koma þar við sögu og má reikna með að þeir séu á ferðinni nú.

Hreyfing krónunnar nú er athyglisverð þar sem svo snarpar veikingarhrinur hafa síðustu ár aðeins komið fram á vetrarmánuðum, þegar gjaldeyrisflæði tengt vöru- og þjónustujöfnuði hefur verið með óhagstæðasta móti og við hefur bæst útflæði tengt vaxtagreiðslum og/eða gjalddögum lána.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×