Aron skoraði fjögur fyrir AGF | Sló met Ebbe Sand Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. ágúst 2012 18:52 Aron í leik með íslenska U-21 landsliðinu. Mynd/Vilhelm
Aron Jóhannsson fór á kostum fyrir danska liðið AGF í dag og skoraði öll fjögur mörkin í 4-1 sigri á Horsens. Hann setti tvö met í leiknum en fyrstu þrjú mörkin komu á tæplega fjögurra mínútna kafla. Aron skoraði fyrstu tvö mörkin af stuttu færi eftir fyrirgjöf og svo þriðja markið eftir skyndisókn. Mörkin voru skoruð á 32., 33. og 36. mínútu í fyrri hálfleik. Samkvæmt Twitter-síðu tölfræðisérfræðinga danska knattspyrnusambandsins skoraði Aron mörkin þrjú á þremur mínútum og 50 sekúndum og slær hann þar með gamla metið sem Ebbe Sand setti árið 1997. Þá skoraði Sand þrennu á fjórum mínútum og tveimur sekúndum. Fjórða markið kom svo úr vítaspyrnu á 49. mínútu og því skoraði Aron fernu á sextán mínútum. Er það einnig met í dönsku úrvalsdeildinni. Hann var búinn að skora eitt mark fyrir AGF á tímabilinu fyrir leik dagsins. AGF komst upp í átta stig með sigrinum í dag en Aron hefur verið í byrjunarliðinu í öllum sjö leikjum liðsins á tímabilinu til þessa. Þetta var aðeins annar sigurleikur AGF á tímabilinu.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Fleiri fréttir Býður sig fram á móti Infantino Ibrahimagic framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Sjá meira