Viðskipti innlent

Fagnar því að „leiða sé leitað“ við að afnema höft

Magnús Halldórsson skrifar
Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands.
Formaður stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða fagnar því að Seðlabanki Íslands skuli leita leiða til þess að afnema höft. Hann segist skilja vel að bankinn vilji setja varrúðarreglur um fjárfestingar lífeyrissjóðanna erlendis, þar sem það fari saman við hagsmuni almennings.

Seðlabanki Íslands kynnti í gær sérrit um varrúðarreglur eftir gjaldeyrishöft, þar sem til umfjöllunar eru reglur sem bankinn að þurfi að innleiða til þess að takmarka áhættu við afnám gjaldeyrishafta, það er þannig að mikið útflæði á fjármagni, á skömmum tíma, grafi ekki undan efnahag landsins og fjármálakerfinu.

Í ritinu er sérstaklega nefnt að bankinn, Fjármálaeftirlitið og stjórnvöld þurfi að mynda starfshóp, sem vinni í sameiningu að innleiðingu reglna og eftir atvikum laga um þessi mál.

Sérstaklega er vikið að því, að takmarka þurfi fjárfestingar lífeyrissjóðanna erlendis, þannig að þeir geti ekki flutt mikið fjármagn úr landi á skömmum tíma. Seðlabankinn segir að þetta megi gera með þrennum hætti:

i. Setja þak á kaup lífeyrissjóðanna á erlendum eignum í hverjum

mánuði eða ársfjórðungi.

ii. Setja þak á hlutfall iðgjalda umfram útgreiðslur sem heimilt væri að

ráðstafa til fjárfestingar erlendis.

iii. Lágmarka tímabundið leyfilegt hlutfall erlendra eigna lífeyrissjóða.

Gunnar Baldvinsson, formaður Landsamtaka lífeyrissjóðanna og framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins, segist fagna því að bankinn vinni að því hörðum höndum að skapa umhverfi fyrir afnám hafta, og segist jafnframt hafa skilning á því að horft sé til fjárfestinga lífeyrissjóðanna erlendis í því samhengi.

„Mér finnst það fagnaðarefni að Seðlabanki Íslands sé að leita leiða til þess að afnema höftin. Ég hef fullan skilning á því að horft sé til þess að takmarka áhættu af fjárfestingu erlendis, þegar kemur að lífeyrissjóðunum. Þeir eru langtímafjárfestar og fjárfesting í erlendum eignum þarf að taka mið af þeim aðstæðum sem eru fyrir hendi hér, þannig að hún þjóni sem tilgangi sínum sem áhættudreifing, og þar með okkar hagsmunir," segir Gunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×