Golf

Heimamaðurinn Andri Már í banastuði á Hellu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Gsimyndir.net
Andri Már Óskarsson úr Golfklúbbi Hellu spilaði fyrsta hringinn á Íslandsmótinu í höggleik á þremur höggum undir pari.

Andri Már fékk sjö fugla og fjóra skolla á hringnum og hefur forystu en fjölmargir keppendur eiga enn eftir að ljúka keppni.

Sigmundur Einar Másson GKG og Þórður Rafn Gissurarson GR luku leik í dag á tveimur höggum undir pari.

Hægt er að fylgjast með gangi mála á mótinu hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×