Stefán Már og Þórður Rafn í gegnum niðurskurðinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. júlí 2012 22:22 Stefán Már var í góðum gír í dag.
Atvinnukylfingarnir Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson, báðir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, komust í gegnum niðurskurðinn á Bayreuth Open mótinu í Þýskalandi en mótið er hluti af EPD mótaröðinni. Þórður Rafn lék hring gærdagsins á 71 höggi eða einu undir pari en ekki gekk jafnvel í dag. Þórður kom í hús á 74 eða tveimur yfir pari og er samanlagt á einu höggi yfir pari eftir tvo hringi. Hann náði þó niðurskurðinum og deilir 38. sæti með átta öðrum kylfingum. Stefán Már, sem spilaði fyrsta hringinn á tveimur yfir pari, átti úrvalshring í dag. Hann spilaði á 69 höggum eða þremur undir og er samanlagt á einu höggi undir pari. Hann er í 26. sæti. Áhugamaðurinn Moritz Lampert frá Þýskalandi er í efsta sæti fyrir lokadaginn sem fram fer á morgun. Lampert hefur verið í sérflokki, er á 13 höggum undir pari samanlagt með fjögurra högga forskot á næsta mann. Lokadagurinn fer fram á morgun. Hægt er að fylgjast með gangi mála á mótinu hér.
Golf Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira