Matur

Helgarmaturinn - Völundur Snær með grilluppskrift

Völundur Snær sjónvarpskokkur deilir með Lífinu, aukablaði Fréttablaðsins í dag fyrstu grilluppskrift sumarsins.

BBC Lifestyle sjónvarpsstöðin hefur nú hafið sýningar á þáttum sjónvarpskokksins, Delicious Iceland, og er hann þar með kominn í hóp með frægu fólki á borð við Nigellu Lawson, Jamie Oliver og Gordon Ramsey sem öll hafa verið með matreiðsluþætti fyrir sjónvarpstöðina. Snemma í sumar verða þættirnir svo sýndir á RÚV.

Steikarsalat með ananas- og engiferdressingu

Tvær 200 gramma nautasteikur eru lagðar í viskí- og púðursykurskryddlög í a.m.k. 1 klukkustund.

Taktu steikurnar úr kryddleginum og skelltu á mjög heitt grill. Grillaðu að eigin ósk, í 2-3 mínútur á hvorri hlið til að fá kjötið meðalhrátt (medium-rare).

Láttu steikurnar standa í um 10 mínútur áður en þú skerð þær svo kjötið haldi safanum og meyrni (ef þú skerð það of fljótt rennur allur safinn úr kjötinu og út á diskinn eða brettið). Skerðu steikurnar í rúmlega sentimetra þykkar sneiðar. Pískaðu saman dressinguna, en geymdu ananasbitana og steinseljuna þar til síðast og bættu því varlega saman við. 

Helltu dressingunni yfir salatið og settu skammt á hvern disk og steikarsneiðar yfir.

Viskí- og púðurskykurskryddlögur

1 tsk sítrónubörkur

1 tsk appelsínubörkur

2 hvítlauksgeirar, saxaðir og maukaðir, eða pressaðir

80 ml búrbonviskí eða Jack Daniels

¼ þéttfullur bolli af ljósum púðursykri

120 ml Kikkoman sojasósa

1 msk Bahncke Dijon-sinnep

1 tsk af sterkri sósu að eigin vali

Blandaðu öllu saman í grunnri skál og helltu yfir kjötið sem á að kryddleggja, láttu standa í a.m.k. klukkustund í ísskáp.

Lengri kryddlögn gerir kjötið bragðmeira, sérstaklega ef sneiðarnar eru þykkar. Snúðu kjötinu af og til, eða settu í stóran, lokaðan plastpoka og snúðu öðru hvoru.

Ananas- og engiferdressing

1 msk Kikkoman sojasósa

5 msk Sun Glory ananassafi

½ tsk fínt rifin engiferrót

½ tsk sesamolía, ljós eða dökk

1 miðlungsstór hvítlauksgeiri, maukaður eða saxaður

1 tsk Meli hunang

1 msk Isio 4 canola- eða grænmetisolía

2 msk ferskur límónusafi

¼ tsk malaðar rauðar piparflögur

1 msk söxuð fersk steinselja

¼ bolli ferskur ananas í teningum

Öllu blandað saman í skál.

Salat

Salatblanda að eigin vali

1 avókadó (lárpera)

1 ½ bolli af kirsuberjatómötum, skornir í fjórðunga

1 fennika skorin í þunna strimla

2-3 hreðkur í þunnum sneiðum

1 fersk appelsína afhýdd og laufin skorin úr

Öllu blandað saman í skál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×