Amnesty boðar til mótmæla við Shell bensínstöðina á Vesturlandsvegi 20. apríl 2012 10:59 Frá óshólmum Níger.
Nýstofnuð Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International stendur fyrir svokallaðri „hreinsunaraðgerð" á Shell bensínstöðinni við Vesturlandsveg þann 22. apríl næstkomandi. Í tilkynningu segjast ungliðarnir vilja vekja athygli á umhverfisspjöllum og mannréttindabrotum sem hlotist hafi af olíuvinnslu Shell á óseyrum Nígerfljóts í Nígeríu og krefja höfuðstöðvar Shell úrbóta. Amnesty segir ennfremur að rétturinn til heilsusamlegs umhverfis séu mannréttindi og Amnesty International krefst þess að olíufyrirtækið Shell geri hreint fyrir sínum dyrum og viðurkenni áhrif olíumengunar á mannréttindi íbúa á óseyrum Nígerfljóts. „Samtökin krefjast þess jafnframt að olíumenguð svæði verði hreinsuð að fullu, samfélög hljóti bætur fyrir skaða af völdum olíumengunar, lögboðið og reglubundið mat á áhrifum olíuvinnslu á mannréttindi íbúa fari fram, og að þeir hafi fullan aðgang að upplýsingum um áhrifin á umhverfi sitt og mannréttindi." Árið 2008 hlaust gífurleg mengun af tveimur stórum olíulekum í Bodó í Ogonihéraði. Shell brást þeirri ábyrgðarskyldu sinni að stöðva lekann tafarlaust. Olíulekarnir voru ekki stöðvaðir fyrr en að mörgum vikum liðnum og rúmum þremur árum síðar hafði Shell ekki sinnt því að hreinsa olíumengunina á svæðinu.Olíulekarnir í Bodó eru aðeins eitt af þúsundum dæma um leka af völdum olíuvinnslu á svæðinu.Íslandsdeild Amnesty International tekur þátt í alþjóðlegri herferð þar sem ákall verður sent til framkvæmdastjóra Shell í Hollandi, Peter Voser, og hann krafinn um að Shell gangist við ábyrgð sinni á olíumengun á óseyrum Nígerfljóts og greiði í upphafi 1 milljarð Bandaríkjadala í sérstakan sjóð sem nýttur verður til að hreinsa svæðið. Einnig snúast kröfurnar um að Shell tryggi lögboðið og reglubundið mat á áhrifum olíuvinnslu á mannréttindi íbúa á óseyrum Nígerfljóts, sjái til þess að öll menguð svæði verði hreinsuð að fullu og greiði sanngjarnar skaðabætur þeim sem beðið hafa skaða af olíuvinnslu á svæðinu. Hægt er að taka þátt í aðgerðinni og senda ákall til Peter Voser hér. Íslandsdeildin mun ennfremur standa fyrir ljósmyndasýningu þann 28. apríl næstkomandi í Kringlunni, til að vekja athygli á herferðinni. Ljósmyndirnar sýna þau miklu umhverfispjöll og mannréttindabrot sem hlotist hafa af olíuvinnslu Shell við óseyra Nígerfljóts.
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira