Súlukóngurinn með stóra hjartað 20. apríl 2012 13:57 Ásgeir Þór Davíðsson lést í gærkvöldi. Vinir hans minnast hans sem káts og skemmtilegs manns. Sumir minnast hans fyrir umdeildan rekstur á nektarstöðum hér á landi.
Það er óhætt að segja að Ásgeir Þór Davíðsson hafi verið umdeildur maður. Hann rak lengi vel nektardansstaði og hafði sínar skoðanir á hlutunum, sem fylgdu ekki alltaf meginstraumi þjóðfélagsins. Samferðarfólk hans segir Ásgeir hafa verið með stórt hjarta fjölskyldukær og ættrækinn. Og hann var góður við náungann að sögn þeirra sem til hans þekktu. „Hann var alltaf tilbúinn að að hjálpa fólki," segir systir Ásgeirs, Bergljót Davíðsdóttir blaðamaður, þegar hún lýsir bróður sínum og bætir við að hann hafi verið elskaður af öllum sem kynntust honum, þrátt fyrir umdeilda persónu.Þrettán ára á sjóinn Ásgeir, eða Geiri á Goldfinger eins og hann var oft kallaður, lést á heimili sínu í gærkvöldi 62 ára gamall. Hann fæddist 25. janúar árið 1950. Hann lætur eftir sig sjö börn. Ásgeir fæddist í Reykjavík en flutti fljótlega í Kópavoginn þar sem hann sótti barnaskóla. Síðar stundaði hann nám við Héraðsskólann á Laugarvatni. Aðeins þrettán ára gamall fór hann fyrst til sjós. Fyrsta skipið sem hann starfaði á var gamla Skjaldbreið hjá Ríksskipum. Ári síðar, eða árið 1964, fór hann að vinna á Arnarfellið hjá SÍS og því næst olíuskipinu Litlafelli. Hann starfaði síðan á íslenskum varðskipum frá 1965 til 1966. Ásgeir menntaði sig í matreiðslu á Hótel Borg frá 1966 til 1969. Eftir námið fór hann á Gullfoss og varð svo matsveinn og bryti hjá Landhelgisgæslunni um tæplega tíu ára skeið, eða árin 1972 til 1983.Súlukóngurinn Það var þá sem Geiri kom í land. Hann festi kaup á Næturgrillinu en flutti út til Spánar árið 1989 þar sem hann bjó næstu þrjú árin. Þegar hann snéri aftur til Íslands opnaði hann veitingastaðinn Skipperinn sem síðar varð að Hafnarkránni. Það var því alltaf stutt í sjómanninn í Geira. Síðar átti Hafnarkráin eftir að verða nektardansstaðurinn Maxíms. Þegar Reykjavíkurborg bannaði nektarstaði í borginni flutti hann alfarið til Kópavogs með rekstur sinn en þar starfrækti hann nektardansstaðinn Goldfinger sem hann rak þangað til hann lést. „Hann var yndislegur maður," segir Bergljót um bróður sinn sem útvegaði henni fyrstu vinnuna sína á Hótel Borg þegar hún var þrettán ára gömul. Hún lýsir bróður sínum sem hjálpsömum manni með stórt hjarta sem virtist alltaf tilbúinn að aðstoða þá sem minna máttu sín. „Ég var einmitt að glugga í einhverjum bréfum sem hann átti fyrir allnokkru, sem ég átti nú líklega ekkert með að vera að gera. Þá fann ég þakkarbréf frá Ísafjarðar-Beggu sem hann aðstoðaði fjárhagslega þegar hún átti í vandræðum," segir Bergljót og bætir við: „Hann gerði aldrei neinn greinarmun á fólki." Og undir þetta tekur Sveinn Andri Sveinsson sem starfaði meðal annars sem lögmaður Geira. „Geiri þekkti ekki snobb nema af afspurn enda átti hann vini í öllum lögum þjóðfélagsins," segir Sveinn Andri þegar hann lýsir Geira. Það er líklega ekki ofsögum sagt að segja að vina- og kunningjahópur Geira hafi verið fjölbreyttur.Umdeildur maður með gott hjartalag Geiri var umdeildur alla sína tíð. Þannig lýsir Sveinn Andri honum sem manni sem ekki batt bagga sína sömu hnútum og samferðarmenn. „Hann var auðvitað umdeildur maður og með miklar skoðanir. Hann fylgdi ekki alltaf meginstraumi samfélagsins." Sveinn Andri segir að þó Geiri hafi verið umdeildur í samfélaginu þá hafi hann ekki verið það á meðal vina. „Menn skiptust kannski á skoðunum við hann og sitt sýndist hverjum. En allir voru sammála um að hann væri góður maður." Sveinn Andri segir Geira hafa verið þrælskemmtilegur. „Og hann var persóna með stórt hjarta," bætir hann við. Þessu er Bergljót sammála. „Hann var alltaf kátur og glaður og bara hversmanns hugljúfi."
Tengdar fréttir Geiri á Goldfinger látinn Ásgeir Þór Davíðsson lést seint í gærkvöldi. Ásgeir, eða Geiri á Goldfinger eins og hann var að jafnan kallaður, var 62 ára gamall þegar hann lést. Ásgeir þótti með líflegri persónuleikum bæjarins en hann rak umdeildan nektardansstað í Kópavogi og hafði áður rekið fjölmarga skemmtistaði víða um borg. Meðal annars Hafnarkrána. 20. apríl 2012 11:04 Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira
Geiri á Goldfinger látinn Ásgeir Þór Davíðsson lést seint í gærkvöldi. Ásgeir, eða Geiri á Goldfinger eins og hann var að jafnan kallaður, var 62 ára gamall þegar hann lést. Ásgeir þótti með líflegri persónuleikum bæjarins en hann rak umdeildan nektardansstað í Kópavogi og hafði áður rekið fjölmarga skemmtistaði víða um borg. Meðal annars Hafnarkrána. 20. apríl 2012 11:04