Stálu 25 kílóum af gasi 20. apríl 2012 16:44
Þjófar stálu samtals 25 kílóum af gasi frá fyrirtæki í Reykjanesbæ fyrr í vikunni samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum. Sá eða þeir sem þarna voru að verki höfðu klippt í sundur lás á geymslugrind sem er á bak við fyrirtækið og komist þannig inn í hana. Þá fékk lögreglan á Suðurnesjum tilkynningu um þjófnað í Nettó í Reykjanesbæ í gær. Sá fingralangi reyndist enn vera í versluninni þegar lögreglumenn mættu á vettvang og skilaði hann vörunum, sem hann hafði tekið, óskemmdum. Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði svo í nótt ökumann vegna gruns um að hann væri ölvaður undir stýri. Maðurinn harðneitaði að hafa neytt áfengis, þótt af honum væri megn áfengislykt. Hann var tvívegis látinn blása í áfengismæli án þess að mælanleg útkoma fengist út úr blæstrinum. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar var hann enn látinn blása í áfengismæli en bar því þá við að hann gæti ekki blásið þar sem mælirinn væri stíflaður. Með þessu framferði leit lögreglan svo á að hann neitaði að gefa öndunarsýni og honum gerð grein fyrir því að slíkt varðaði, samkvæmt umferðarlögum, 100 þúsund króna sekt, auk árs sviptingar ökuréttinda, að viðbættri sekt og sviptingu fyrir ölvunarakstur. Að því búnu var honum enn gefið tækifæri til að blása en hann þverskallaðist við. Fagaðili var þá fenginn á lögreglustöðina til að taka blóðsýni úr manninum sem hinn síðarnefndi féllst á eftir nokkurt þóf. Prófanir á áfengismælinum sýndu að hann var í fullkomnu lagi.
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Fleiri fréttir Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Sjá meira