Erfðabreytt matvæli í Nóa Kroppi og Freyju Hrís Erla Hlynsdóttir skrifar 20. apríl 2012 19:00
Nóa Kropp og Freyju Hrís innihalda erfðabreytt matvæli, og eru nú merkt þannig á umbúðum í samræmi við nýlega reglugerð. Freyja þarf að henda talsverðu magni af umbúðum, sem nú eru úreltar. Engar breytingar hafa verið gerðar á Nóa Kroppi og Freyju Hrís. Þær eru nákvæmlega eins og þær hafa verið. En núna, samkvæmt nýlegri reglugerð, er búið að merkja þær þannig að þær innihalda erfðabreytt matvæli. Í þessum tilvikum er um að ræða erfðabreyttan maís. Reglurnar tóku gildi um áramótin, og er óheimilt að selja slík matvæli án þess að þau séu þannig merkt. „Við fórum bara í aðgerðir þegar við sáum þessa reglugerð koma. Þetta var ákvörðun hjá fyrirtækinu. Við ætlum ekki að vera með erfðabreytt matvæli í okkar vöruvali og skiptum þeim bara út þar sem þau voru ekki mörg," segir Kristján Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Síríus. „Það eina sem stendur út af er Nóa Kropp. Og þá er það bara merkt á umbúðunum eins og reglugerðin gerir ráð fyrir." Kristján segir að Nói Síríus ætli ekki að breyta vörunni. „Nei, þetta er vara sem neytandinn vill hafa óbreyttu formi. Þannig að við höfum ekki séð neitt hráefni sem getur komið í staðinn fyrir það sem er í vörunni og stenst okkar kröfur - ekki ennþá," segir Kristján. Neytendasamtökin minntu nýverið á reglugerðina, þar sem borið hefur á að henni sé ekki fylgt. Þegar fréttastofa fór í búðarferð fundust í einni hillunni pokar af Freyju Hrís, sumir merktir þannig að þeir innihalda erfðabreytt matvæli, en aðrir voru ekki merktir. Forsvarsmenn Freyju gagnrýna í samtali við fréttastofu hversu skamman fyrirvara fyrirtæki fengu til að breyta merkingum á umbúðum. Þeir segja allt Hrís sem framleitt var eftir áramót merkt, en þeir sjái fram á að þurfa að henda miklu magni af umbúðum sem nú eru úreltar.Sjá má myndrænni umfjöllun í meðfylgnandi myndskeiði.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fleiri fréttir Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Sjá meira