Innlent

Fegurðin skiptir miklu máli

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Smái er að teikna kort af Ísafirði, hús fyrir hús, skúr fyrir skúr. Það er enn á mörgum blöðum en verður fellt saman í ferðamannakort í stærðinni A3.
Smái er að teikna kort af Ísafirði, hús fyrir hús, skúr fyrir skúr. Það er enn á mörgum blöðum en verður fellt saman í ferðamannakort í stærðinni A3. mynd/gva
Í húsinu númer átta við Hrannargötu á Ísafirði búa hjónin Nína Ivanova og Ómar Smári Kristinsson . Bæði eru þau listamenn og lífskúnstnerar. Hún sinnir mest grafískri hönnun og tölvan er hennar aðalgræja, hann málar hús, bæi og kort á pappír með handverkfærum og nostrar við hvert smáatriði. Gunnþóra Gunnarsdóttir kíkti í heimsókn til þeirra.

Þótt miður vinnudagur sé eru þau Nína Ivanova og Ómar Smári Kristinsson heima við og bjóða í bæinn þegar bankað er upp á. „Við erum sjálfstætt starfandi myndlistarmenn og Smári er líka útivistarmaður í sálinni," segir Nína brosandi. Hún viðurkennir að lífsstíl þeirra fylgi ekki fjárhagslegt öryggi með fasta innkomu í hverjum mánuði. „Okkar lífsstíl fylgir hins vegar það öryggi að geta unnið hvenær sem er og hvar sem er og að enginn getur rekið okkur," bendir hún á. Smári tekur undir það. „Okkur verður heldur ekki skipað að hætta þegar við verðum 67 ára. En það þarf visst hugrekki til að taka þessa stefnu í lífinu."

Nína kveðst mest vinna við bókahönnun og umbrot, meðal annars fyrir Vestfirska forlagið og aðalverkefni Smára um þessar mundir er að teikna kort af Ísafirði, hús fyrir hús. Það er núna á mörgum blöðum en verður síðan fellt saman og gefið út sem ferðamannakort í stærðinni A3. „Ég hef teiknað bæja- og sveitakort til að auðvelda fólki að rata, til dæmis af Hólmavík, Patreksfirði, Bolungarvík og Árneshreppi, en þetta er viðamesta verkefnið á því sviði til þessa," segir hann.

Í vetrarhöllinni

Margir þekkja Smára og Nínu úr Landmannalaugum. Þar ráku þau sumar eftir sumar verslun og veitingastað í rútu og vöruúrvalið var ævintýralegt á örfáum fermetrum. Á haustin pökkuðu þau saman og fluttu út í Æðey á Ísafjarðardjúpi þar sem þau sinntu veðurathugun og fjárbúskap í sjö vetur. Árið 2005, eftir síðustu vetrarvist í Æðey, festu þau kaup á húsi á Ísafirði og fluttu í það. Þau nefna það Garðaríki. Nafnið skírskotar til þess að Nína er rússnesk og til forna hét Rússland Garðaríki. Einnig fundu þau í orðabók að Garðaríki getur þýtt safn af húsum og safn af görðum og þar sem húsið þeirra hafði upphaflega verið þrjú hús og þrír smágarðar á nafnið einkar vel við. „Húsin þrjú höfðu oft skipt um eigendur, á hverju ári hittum við fólk sem hefur búið innan þessara veggja og hér hafa margir fæðst og dáið," segir Smári. „Nú erum við komin með upplýsingar um þá sem við vitum að tengjast húsinu í sérstaka möppu og þar hefur safnast mikil saga."

Í nettri útbyggingu úr gleri er hlýtt þó hitastigið sé lágt úti. „Þetta er vetrarhöllin okkar," segir Nína. „Hér var skúr sem þurfti að rífa, við teiknuðum þetta í staðinn og fengum góða fagmenn til að saga rétt. Erum að taka húsið í gegn smátt og smátt og finnst lítið þokast en Smári er svo sniðugur að taka myndir af hverju skrefi framkvæmdanna og þegar við skoðum hvernig allt var í byrjun er minna grátið yfir því hvað mikið er eftir."

Vetrarhöllin gengur inn í litla baklóð með múrsteinslögðum stígum í þrjár áttir. „Við settum hlið á girðingarnar þannig að fólk gæti labbað í gegn og lögðum þessar göngubrautir fyrir krakka og ketti. Húsið var alveg innilokað fyrst en eftir að við brutum einn ljótan vegg var eins og hönnuður hefði búið til sviðsmynd," segir Smári og bendir gegnum vítt húsasund út á Djúpið. Snæfjallaströndin sést í fjarska en í forgrunni er fallegur bátur. Tveir litlir skúrar skreyta líka lóðina. „Það sem einkenndi byggðina hér á eyrinni lengi vel voru skúrar því flestir íbúanna voru með einhverja útgerð eða húsdýr. Þar sem við stöndum núna var einu sinni fjós," útskýrir Smári.

Nína hefur teiknað landakort í björtum litum á skúrvegg sem hún segir hafa boðið upp á það með öllum sínum sprungum. „Þetta er land sem svífur á Mars," segir hún hlæjandi. „Ég þori ekki að mála nein alvöru lönd því þá fengi ég engan frið fyrir Smára!"

Við erum næturdýr

Hvernig skyldu svo Nína og Smári hafa náð saman upphaflega?

„Við kynntumst í Þýskalandi þegar við vorum þar bæði í myndlistarnámi en þó við værum í sama skóla þá sáumst við voða sjaldan þar," segir Smári. „Við vorum nefnilega næturdýr." „Smári hefur versnað síðan við kynntumst," laumar Nína að. „Aðlögunarhæfni," skýtur Smári inn á móti. „Í stórri borg vorum við að hittast fyrir tilviljun í neðanjarðarlestinni um miðja nótt, í búð sem var opin á nóttunni eða bara á götum úti." „Ég tók strax eftir Smára, hann var svo lifandi manneskja innan um alla Þjóðverjana," segir Nína. „Einu sinni vildi hún setjast við hliðina á mér á fundi og benti mér á að búa til pláss en sá ekki að við hina hlið mér var fullt af listaverkum svo ég gat ekki fært mig. Ég var mállaus og feiminn og varð bara vandræðalegur," rifjar Smári upp og þau hlæja saman. „Þetta var 1994. Ég vissi ekkert um Ísland þá nema að Gorbatsjov og Reagan hefðu haldið fund þar," segir Nína. „En þegar ég var búin að hitta Íslendinginn hugsaði ég: Æ, þarf ég að fara að læra landafræði? Vesen! Ég kann ekki enn landafræði en hún er áhugamál hjá Smára. Kortagerð og landafræði."

„Við skiptum með okkur verkum. Ég sé um landafræðina og Nína um tölvurnar," útskýrir Smári og brosir sínu góðlátlega brosi en segir þau líka oft vinna saman. Sem dæmi um slíkt verkefni sýnir hann Hjólabók sem kom út eftir hann í fyrra og lýsir 14 hjólreiðaleiðum á Vestfjörðum sem eiga það sameiginlegt að allar liggja í hring og hverja um sig er hægt að hjóla á einum degi.

„Smári hjólaði sjálfur hvern einasta metra, tók niður GPS-punkta, skrifaði niður það markverðasta sem fyrir augu bar og lýsir bæði athyglisverðum og erfiðum hlutum leiðarinnar," segir Nína. „Svo eru ótal myndir og kort."

Smári segir marga þætti hafa orðið til þess að bókin varð til. „Það fyrsta var að við losnuðum úr Fjallafangi í Landmannalaugum, annað var að vinnu minnar vegna var ég orðinn hálfgerður sjúklingur, ég hreyfði mig of lítið og var tíðum með höfuðverk. Svo gerðist það að ég fékk hjólabakteríu og nú hjóla ég upp á hvern dag og fer í lengri túra á sumrin. Á sama tíma verður þjóðin blönk og hefur ekki efni á að kaupa sér þetta dýra bensín og það er vitundarvakning í gangi um hvað hreyfing og útivera geri fólki gott."

Þegar Nína er spurð hvort hún hjóli með Smára svarar hún hlæjandi: „Nei, ég get hjólað beina línu, svona 500 metra en svo kemur alltaf einhver staur og stímir á mig!"

Lifa lífinu

Smári og Nína tóku virkan þátt í stofnun Félags handverksfólks á Vestfjörðum og að því laðaði Smári líka vestfirskt tónlistarfólk. Það félag, með Smára og Nínu í fararbroddi, og Vestfirska forlagið lögðu grunn að Vestfirzku verzluninni sem annar aðili rekur nú með myndarbrag við Silfurtorgið og selur vestfirskar afurðir á borð við hljómdiska, bækur, salt og ýmiss konar handverk, að ógleymdu hafkalkinu úr Arnarfirði. „Hér á Ísafirði er blómlegt menningar- og listalíf, kannski vegna þess hve fjarlægðin frá Reykjavík er mikil. Þetta er sjálfstætt samfélag og hlutfall þeirra sem eru virkir í menningarlífinu er mjög hátt. Það var eitt af því sem hjálpaði okkur að velja stað til að búa á þegar við hættum að vera eins og farfuglar í Æðey á veturna og Landmannalaugum á sumrin," segir Smári sem - þrátt fyrir að vera uppalinn á sléttlendi Suðurlands, nánar tiltekið í Holtunum, kann vel við sig innan um fjöllin fyrir vestan.

„Lóðrétt landslag höfðar betur til mín en lárétt og náttúrufegurð er mér líka mjög mikilvæg. Með því að vera á Vestfjörðum á veturna og hjóla um landið á sumrin er þessari þörf fullnægt," segir hann brosandi. Nína grípur það á lofti. „Það er svo oft sem fólk gleymir því hvað fegurðin skiptir miklu máli. Tilgangurinn með lífinu er ekki bara að koma sér fyrir í einhverjum kassa og lifa af, maður þarf að lifa lífinu með meðvitund og nautn."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×