Sveitungar Steingríms óttast pólitíska spillingu með kvótafrumvörpum 24. apríl 2012 11:05 Þórshöfn á Langanesi. Mynd/PK
Sveitarstjórn Langanesbyggðar telur að kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar vegi ekki aðeins að heilu byggðarlögunum heldur leiði einnig til pólitískrar spillingar. Þetta segir í umsögn sem send hefur verið atvinnuveganefnd Alþingis um stjórnarfrumvörp Steingríms J. Sigfússonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til laga um stjórn fiskveiða og um veiðigjöld. Umsögnin kemur úr heimahéraði Steingríms J., sem er frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði, en þeir eru um tólf kílómetra frá Þórshöfn þar sem skrifstofa Langanesbyggðar er. Gunnarsstaðir eru þó í næsta sveitarfélagi við, Svalbarðshreppi. "Sveitarstjórn Langanesbyggðar óttast að fyrirkomulag það sem frumvarpið boðar við stjórn fiskveiða, leiði ekki aðeins til óhagræðis og sóunar, heldur einnig pólítískrar spillingar. Frumvarpið vegur jafnframt að heilu byggðalögunum, starfsöryggi fiskvinnslufólks, sjómanna og útgerðarfyrirtækja sem eru burðarásar búsetu á landsbyggðinni og þar með kjörum þeirra fjölskyldna sem eiga afkomu sína undir fiskveiðum og vinnslu," segir í umsögninni. Í umsögn um frumvarp til laga um veiðigjöld segir meðal annars: "Það er mat sveitarstjórnar Langanesbyggðar að umrætt frumvarp til laga um veiðigjöld muni hafi gríðarlegar og ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir sveitarfélagið. Hagsmunir sjávarbyggða á borð við Langanesbyggð fara saman við hagsmuni öflugra sjávarútvegsfyrirtækja. Ljóst er að veiðigjöldin sem frumvarpið boðar yrðu afar íþyngjandi fyrir rekstur þeirra. Þannig myndi frumvarpið leiða til verulegs samdráttar í starfsemi sjávarútvegsfyrirtækjanna og þar af leiðandi draga úr umsvifum þeirra í sjávarbyggðunum. Uppbyggingu og árangri síðustu ára í atvinnulífi Langanesbyggðar yrði stefnt í voða og búsetuskilyrði í sveitarfélaginu rýrð." Sveitarstjórn Langanesbyggðar kveðst ekki getað unað við slíkt og krefst þess að bæði frumvörpin verði dregin til baka.
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira