Bræður dæmdir fyrir líkamsárás á Ráðhústorginu 25. apríl 2012 11:46 Akureyri
Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi bræður á þrítugsaldri fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Annar bróðirinn hlaut átta mánaða fangelsisdóm, en hann var á skilorði vegna annars brots. Sex mánuðir dómsins eru skilorðsbundnir. Hinn maðurinn var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þeir skulu einnig greiða fórnarlambi sínu hundrað þúsund krónur. Þeir játuðu sök. Bræðurnir veittust að manni á torginu og sló annar þeirra hann í hnakkann með glerflösku sem brotnaði við höggið. Hinn bróðirinn sló þá manninn að minnsta kosti tvisvar sinnum í andlitið og sparkaði síðan í fórnarlambið þegar það var fallið í götuna. Maðurinn marðist við árásina í andliti og fékk sár á hnakkann. Dómarinn segir það auka á alvarleika brotsins að bræðurnir hafi unnið það í félagi. Verjandi þeirra byggði hinsvegar á því fyrir dómi að annar bróðirinn hafi verið að ná sér eftir mjaðmargrindarbrot og því ekki mátt við því að fá högg eða áverka. „Því hefðu ákærðu þurft að hafa snör handtök þegar átök hefðu hafizt," segir í dómnum. Að mati dómara breytir þetta engu, enda hafi ekki verið sýnt fram á að „ástand þess ákærða á umræddum tíma réttlæti" árásina.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira