Innlent

Kviknaði í út frá tengikassa

Rannsókn lögreglu hefur leitt í ljós að eldsupptök í stórbrunanum í Set á Selfossi í síðasta mánuði voru út frá rafmagni í tengikassa sem var staðsettur í suðvesturhluta lagerhússins sem brann.

Þetta kemur fram á fréttavefnum sunnlenska.is. Lagerhúsið stórskemmdist í brunanum en eldurinn breiddist á endanum yfir 800bar sem brann til kaldra kola. Tjónið var hátt í tuttugu milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×