Glæfraakstur afbrigðileg hegðun Erla Hlynsdóttir skrifar 10. apríl 2012 19:00
Ökumenn sem stunda glæfraakstur úti á Granda senda sms-skeyti sín á milli til að láta vita ef lögreglan nálgast. Samgöngustjóri Reykjavíkur segir það hingað til ekki hafa komið til tals að borgin setji upp eftirlitsmyndavélar á svæðinu. Myndband sem sýnir háværan glæfraakstur við Grandatorg, og sýnd var í fréttum okkar í gærkvöldi, þykir lýsandi fyrir ástandið á svæðinu eftir miðnætti. Vandamálið hefur verið viðvarandi árum saman. „Auðvitað lítum við þetta alvarlegum augum. þetta bæði skapar hættu í umferðinni og truflar nágrannana," segir Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri Reykjavíkur. Varðstjóri umferðardeildar lögreglunnar, Guðbrandur Sigurðsson, sagði í samtali við fréttastofu í dag að lögreglan hefði reynt margt, en til að ná raunverulegum árangri þurfi öflugt samstarf við borgina. Þannig væri æskilegt að borgin greiddi fyrir uppsetningu hraðahindrana. Ólafur tekur hins vegar fram að borgin sjái um að leggja vegi sem henta til aksturs þar sem fyllsta öryggis er gætt og vegfarendur fara að lögum. „Þetta eru svona sérstakar breytingar sem kæmu þarna til álita sem við hefðum vissar áhyggjur af því að sköpuðu þá minna öryggi fyrir aðra vegfarendur svo sem eins og mótorhjólamenn," segir Ólafur og bætir við: „Þetta er náttúrulega afbrigðileg hegðun sem við lítum nú fyrst og fremst á að lögreglan eigi að bregðast við." Þá hafa íbúar krafist þess að settar verði upp eftirlitsmyndavélar á svæðinu en engin viðbrögð fengið.Þannig að það í rauninn stendur ekki til af hálfu borgarinnar að setja upp eftirlitsmyndavélar á þessu svæði? „Nei, það hefur ekki beinlínis komið til tals en þetta er eitt af því sem við munum ræða," svarar Ólafur. Guðbrandur lögregluvarðstjóri segir ökumennina þaulskipulagða í brotum sínum, að þeir skiptist á að standa vaktir í nágrenni við svæðið og sendi sms-skeyti sín á milli þegar lögreglan nálgast. Engu að síður hafa lögreglumenn handsamað fjölda brotamanna, meðal annars með því að vera á ómerktum bílum. „Og það sem er grundvallarvandamálið í þessu eftirliti öllu saman er hvað menn eru fljótir burtu og eru vel á verði gagnvart þeim sem líta til með þeim," segir Ólafur að lokum.Sjá umfjöllun í meðfylgjandi myndskeiði.
Mest lesið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Innlent Fleiri fréttir Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Sjá meira