Fornmunir á lóð Landspítalans afhentir Þjóðminjasafninu 13. apríl 2012 13:13 Korðinn sem fannst við uppgröftinn hefur líklega verið í eigu ábúenda á Grænuborg. Mynd nyrlandspitali.is
Hátt í hundrað gripir sem fundust við fornleifauppgröft á lóð Landspítala við Hringbraut hafa verið færðir Þjóðminjasafni. Gripirnir, sem flestir eru úr keramik og gleri, fundust við fornleifarannsóknirnar á lóðinni í fyrrahaust. Meðal annars fundust ölflöskur og skrautsverð. Vala Björg Garðarsdóttir, fornleifafræðingur var uppgreftrarstjóri rannsóknarinnar. Hún gekk út á að kanna svæði sunnan við gamla Landspítalann. Þar stóð bærinn Grænaborg í um eitt hundrað ár, frá um 1830-1930, en flestir gripanna sem fundust eru frá þeim tíma. Vala segir að það sem helst hafi komið á óvart hafi verið að finna gamla og veglega fjárborg undir bænum. Meðal annarra áhugaverðra muna sem fundust var gamall korði eða skrautsverð. Sá gæti verið mun eldri en Grænuborgarbærinn eða á bilinu 400-600 ára gamall, að því er fram kom þegar gripirnir voru afhentir Þjóðminjasafninu. Líka fundust nýrri gripir við uppgröftinn og sumir þeirra tengjast að líkindum byggingu Gamla Landspítalahússins, en hún hófst í kringum 1925. Vala segir að t.d. hafi fundist þakflísar eins og nýttar voru í gamla spítalahúsið og sömuleiðis töluvert af rúðugleri og ölflöskum. Líklega hafa verkamenn svalað sér á ölinu úr þeim þegar þeir unnu að því að reisa gamla Landspítalahúsið við Hringbraut fyrir hátt í níutíu árum. Nánar má fræðast um málið á heimasíðu nýs Landspítala.
Mest lesið „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi Innlent Herþotur sendar á loft vegna rússneskrar eftirlitsflugvélar Erlent Fyrirgefur morðingjanum Erlent Bilun hjá fjarskiptafyrirtæki sögð hafa valdið fjórum dauðsföllum Erlent Réðst á konur og sló í miðborginni Innlent Ofurfellibylurinn Ragasa nálgast Filippseyjar Erlent ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Innlent Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Innlent Frítt í Strætó um allt land í dag Innlent Í fyrsta sinn fleiri börn með offitu en í undirþyngd Erlent Fleiri fréttir Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Frítt í Strætó um allt land í dag Réðst á konur og sló í miðborginni „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjálfstæði Palestínu, minningarathöfn um Kirk og tré ársins Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ „Dreifbýlið hefur alltaf haft áhyggjur af því að fjármagnið sogist til þéttbýlisins“ Þorgerður Katrín endurkjörin Frítt í Strætó á Bíllausa deginum á morgun Hefur farið 100 sinnu á fjall á Fljótshlíðarafrétti Viðreisn verður áfram bara Viðreisn Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Sjálfstæð Palestína, væringar í Framsókn og fækkun um eitt sveitarfélag Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Staða Framsóknarflokksins, afnám áminningarskyldu og Evrópumálin í Sprengisandi Telur áform ráðherra vanhugsuð Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Sjá meira