Rammaáætlun lögð fram 30. mars 2012 14:03 Frá neðri hluta Þjórsár
Oddný Harðardóttir iðnaðarráðherra hefur í samráði við Svandísi Svavarsdóttir umhverfisráðherra lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu. Um er að ræða fyrstu þingsályktunartillöguna sem fram kemur um flokkun hugsanlegra kosta í orkunýtingar-, verndar- og biðflokk á grundvelli laga um rammaáætlun frá í fyrra, en gert er ráð fyrir að Alþingi afgreiði slíkar tillögur eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti. Um er að ræða fyrstu þingsályktunartillöguna sem fram kemur um flokkun hugsanlegra kosta í orkunýtingar-, verndar- og biðflokk á grundvelli laga um rammaáætlun frá í fyrra, en gert er ráð fyrir að Alþingi afgreiði slíkar tillögur eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti. Drög að tillögunni voru send í opið samráðs- og kynningarferli í ágúst og bárust yfir 200 athugasemdir. Í tilkynningunni segir að tillagan sem nú sé lögð fram sé að mestu samhljóða drögunum en helstu breytingar eru þó þær að virkjanir í Neðri Þjórsá eru settar í biðflokk og sama er að segja um hálendisvirkjanirnar Hágöngu I og II auk Skrokkölduvirkjunar. „Megintilgangurinn með nýrri rammaáætlunarskipan er að ákvarðanir um orkunýtingu verði framvegis teknar á grundvelli rannsókna og faglegs samanburðar á margvíslegu nýtingargildi landsvæða þar sem orku er að finna, þar á meðal verndarnýtingar með tilliti til hagsmuna tengdum náttúruvernd, útivist og ferðaþjónustu," segir ennfremur. „Við samþykkt laganna um rammaáætlun komu fram þær óskir frá talsmönnum allra flokka að þessi nýja skipan gæti stuðlað að aukinni sátt á þessu sviði eftir miklar deilur undanfarna fjóra áratugi, þótt áfram verði skiptar skoðanir um einstök orkunýtingar- og verndarverkefni." Rökin fyrir því að áðurnefndir kostir eru settir í bið eru samkvæmt tilkynningunni þau að að „vegna nýrra upplýsinga sem komu fram í samráðsferlinu beri að rannsaka tiltekna þætti betur áður en endanleg ákvörðun um nýtingu eða vernd verður tekin. Á grundvelli laga nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun, er hér svokallað varúðarsjónarmið haft til hliðsjónar; ef það er vafi þá beri að kanna hann til hlítar áður en endanleg ákvörðun er tekin. Því er ekki gengið gegn niðurstöðum verkefnisstjórnar rammaáætlunar þar sem engir virkjunarkostir eru færðir í orkunýtingarflokk eða verndarflokk. Einungis er verið að gæta ítrustu varúðar með tilliti til þeirra nýju upplýsinga sem fram komu í samráðsferlinu." Þá segir að í umsagnarferlinu komu fram nýjar upplýsingar, er varða laxagengd. „Af þeim sökum er talið að afla þurfi frekari upplýsinga um hvaða áhrif þessar virkjanir muni hafa á laxfiska í Þjórsá." Þá eru virkjanir á hálendinu jafnframt færðar úr orkunýtingarflokki í biðflokk, þ.e. Skrokkölduvirkjun og Hágönguvirkjanir I og II. „Fyrirhugaðar virkjanir þar eru skammt frá Vatnajökulsþjóðgarði og í umsagnarferlinu kom fram að áhrif virkjana á verndarsvæði þjóðgarðsins hafi ekki verið metin skv. alþjóðlegum viðmiðunum." Í þingsályktunartillögunni er jafnframt hert á atriðum er snúa að brennisteinsmengun og niðurdælingu, „vakin er athygli á nýjum upplýsingum um Hagavatnsvirkjun auk þess sem nánari landfræðileg afmörkun er skilgreind fyrir Sveifluháls sem virkjanakosts. Þá eru tveir virkjanakostir, Eyjadalsárvirkjun og Hveravellir, felldir út þar sem í ljós kom að þeir féllu utan gildissviðs laga nr. 48/2011. Þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir því að í orkunýtingarflokki verði 16 virkjanakostir með samanlagða áætlaða orkuvinnslugetu upp á 8.484 GWst. Í biðflokki verði 31 virkjanakostur með samanlagða orkuvinnslugetu upp á 12.533 GWst og í verndarflokki 20 virkjanakostir með 11.339 GWst orkuvinnslugetu."
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira