Kosið um stjórnarskrá og fimm lykilmál samhliða forsetakosningum Þorbjörn Þórðarson skrifar 20. mars 2012 12:16 Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis ætlar að leggja fram þingsályktunartillögu síðar í dag um að kosið verði um tillögu stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá samhliða forsetakosningum 30. júní. Valgerður Bjarnadóttir er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis samþykkti á fundi sínum í morgun að kosið verði um tillögu stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá og fimm grundvallarmál samhliða forsetakosningum hinn 30. júní næstkomandi. Vefsvæðið Smugan greindi frá því í morgun að kosið yrði um tillögu stjórnlagaráðs samhliða forsetakosningum, en samkvæmt upplýsingum frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd verður tvíþættur kjörseðill lagður fram samhliða forsetakjöri hinn 30. júní. Fyrst verður lögð fram svohljóðandi spurning, þar sem kjósendur eru beðnir um að taka afstöðu til tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá:1. Vilt þú að tillaga stjórnlagaráðs verði lögð fram sem frumvarp að nýrri stjórnarskrá eftir að hún hefur verið yfirfarin með tilliti til laga og alþjóðasamninga? Eins og sést á spurningunni er fyrirvari um að tillögu ráðsins verði breytt eftir að þjóðin hefur tekið afstöðu til spurningarinnar. Er í raun áskilið í spurningunni að tillögunni kunni að verða breytt. Í síðari lið kjörseðilsins verða kjósendur beðnir, samkvæmt upplýsingum fréttastofu, um að taka afstöðu til fimm grundvallarmála með svohljóðandi já eða nei spurningum:2. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði:1) Náttúruauðlindir lýstar þjóðareign?2) Ákvæði þjóðkirkju óbreytt frá því sem nú er?3) Persónukjör í kosningum heimilað í meira mæli en nú er?4) Ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar af landinu vegi jafnt?5) Ákvæði um að tiltekinn hluti kosningabærra manna geti farið fram á þjóðaratkvæðagreiðslu? Ef já, hversu hátt hlutfall á þetta að vera 10%, 15% eða 20%? Samkvæmt upplýsingum frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hyggst meirihluti nefndarinnar leggja þingsályktunartillögu þess efnis fram á þingi síðar í dag. Eins og sést má velta því fyrir sér hvort spurningarnar á kjörseðlinum stangist á, enda ef meirihluti kjósenda samþykkir eitthvað í síðari liðnum sem ekki er að finna í tillögu stjórnlagaráðs þá liggur í hlutarins eðli að breyta þurfi tillögu ráðsins í samræmi við það. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Allar stöðvar ræstar út vegna elds á Holtavegi Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Sjá meira