Leikjavísir

Árshátíð CCP - DUST 514 heimsfrumsýndur

„Við erum beinlínis að taka yfir Hörpuna," segir Eldar Ástþórsson, verkefnastjóri markaðsdeildar CCP. Fanfest hátíðin hófst í dag en þar mun tölvuleikjaframleiðandinn CCP heimsfrumsýna nýjustu afurð sína - DUST 514.

Eldar sagði í samtali við Vísi að rífandi stemning sé nú í Hörpunni. „Það er ótrúlega gaman að sjá Hörpuna troðfulla af fólki," segir Eldar „Við höfum eignað okkur hvern krók og kima í húsinu."

Fjöldi fyrirlestra voru haldnir í Hörpunni í dag þar sem rætt var hin ýmsu málefni sem tengjast EVE Online og DUST 514.

Á annað þúsund manns munu sækja hátíðina en henni lýkur á laugardaginn. Yfir 70 blaðamenn víðsvegar að úr heiminum verða einnig viðstaddir.

mynd/CCP
Þá eru forsvarsmenn tæknifyrirtækisins SONY á staðnum. Þar á meðal er Chris Clarke en hann sér um samskipti SONY og Playstation 3 við Evrópulönd.

„Clarke og fleiri menn frá SONY eru komnir hingað til að hjálpa til við kynningu á DUST 514," segir Eldar.

Fanfest hátíðin fer nú fram í áttunda sinn. Eldar segir Fanfest vera nokkurs konar uppskeruhátíð CCP þar sem spilarar EVE Online tölvuleiksins og starfsmenn fyrirtækisins hittast.

„Að auki er hátíðin ákveðið tækifæri fyrir okkur til að kynna nýjungar - í þessu tilfelli kynnum við DUST 514."

DUST 514 er fjölspilunar-skotleikur. Hann verður gefinn út á leikjavél SONY seinna á árinu. Leikurinn hefur vakið gríðarlega athygli en CCP hefur innleitt nýstárlegt viðskiptamódel með útgáfu hans. Þannig verður leikurinn fáanlegur öllum eigendum Playstation 3 leikjatölvunnar án endurgjalds.

mynd/CCP
Viðskiptalíkanið kallast „Free to Play" og verður DUST 514 fyrsti tölvuleikurinn til að notast við það.

Tekna verður aflað með sölu á varningi og ýmsum viðbótum sem opna á frekari möguleika spilara leiksins. „Þessar vörur koma þó ekki í staðinn fyrir getu manns í leiknum," segir Eldar. „Varningurinn er einungis til þess að gera spilurum hans kleift að fá enn meira úr upplifun sinni. Allir geta spilað frítt og náð árangri í leiknum, en fjölbreyttari vopn og fleira verður í boði fyrir þá sem vilja meira."

Um 170 manns koma að þróun DUST 514 en leikurinn var að stórum hluta til framleiddur á skrifstofu CCP í Sjanghæ.


Tengdar fréttir

Fanfest: Þjóðhátíð tölvuleikjaspilara

Tölvuleikjaframleiðandinn CCP kynnti nú síðdegis nýjan tölvuleik fyrir Play Station leikjatölvur. Leikurinn hefur verið í þróun í fjögur ár og markar hann tímamót í tölvuleikjaiðnaði heimsins segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

CCP með fyrirlestur í Hörpu

Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP stendur fyrir opnum fyrirlestri og kynningu á starfsemi fyrirtækisins í Hörpunni á morgun. Rætt verður um fjölspilunarleikinn EVE Online og EVE Fanfest hátíðinni sem haldin verður í tónlistarhúsinu um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×