Ólafur Ragnar á Norðurslóðaráðstefnu í Boston 26. mars 2012 13:26
Ólafur Ragnar Grímsson forseti flytur í dag lokaræðu á alþjóðlegri ráðstefnu um framtíð Norðurslóða sem haldin er af Fletcher School við Tufts háskólann í Boston. Í tilkynningu frá embættinu segir að ræða forseta beri heitið „The Arctic: A New Model for Global Cooperation". „Upphafsræðu ráðstefnunnar flutti í gær John Kerry, formaður utanríkismálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings og forsetaframbjóðandi demókrata árið 2004. Þátttakendur í ráðstefnunni eru sérfræðingar og áhrifamenn í málefnum Norðurslóða, svo og prófessorar og nemendur við Tufts háskólann." Þá segir að á ráðstefnunni sé fjallað um hvernig haga beri nýtingu auðlinda á Norðurslóðum, umhverfisvernd og þróun frekari samvinnu. „Einnig er rætt um áhrif Norðurslóða á heimsvísu, hvaða lærdóma megi draga af reynslu síðustu ára og hvernig bregðast eigi við aukinni sókn ríkja frá öðrum heimshlutum, frá t.d. Asíu og Evrópu, í aðgang að Norðurslóðum og auðlindum þeirra." „Í ræðu sinni mun forseti fjalla um samstarfsformið sem fest hefur verið í sessi á Norðurslóðum, þátt almannasamtaka, frumbyggja og vísindasamfélags í stefnumótun, árangur af opnari vinnubrögðum en tíðkast hafa á öðrum sviðum alþjóðamála og aðhaldið sem áherslur á lýðræði og vísindarannsóknir skapa stefnumótuninni. Þá mun forseti reifa hvernig það samstarfsform sem ríkin á Norðurslóðum hafa mótað á síðastliðnum 10-15 árum getur nýst í öðrum heimshlutum." John Kerry áréttaði í ræðu sinni í gær að Bandaríkin yrðu að gera sig mun meira gildandi í málefnum Norðurslóða. „Það skipti miklu máli í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og gæti eflt vitund almennings um hvað væri í húfi. Hann rakti niðurstöður ýmissa nýrra vísindarannsókna sem sýna að aðeins fáein ár eru til stefnu ef mannkyni á að takast að koma í veg fyrir hrikalegar afleiðingar loftslagsbreytinga. Það væri stærsta verkefni samtímans."
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Erlent Fleiri fréttir Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Sjá meira