Ætla að setja heimsmet í tannburstun 26. mars 2012 15:04
Á morgun, þriðjudaginn 27. mars, klukkan 9.30 verður sett íslandsmet í tannburstun þegar Íþróttaálfurinn, nemendur í Snælandsskóla og starfsólk skólans taka sig til og bursta tennurnar í matsal skólans. Metið er hluti af átaki Barnaheilla - Save the Children á Íslandi um bætt tannheilbrigði hjá íslenskum börnum, en tannheilsa barna á Íslandi er í sjötta neðsta sæti í samanburði við OECD-löndin. „Nemendur í Snælandsskóla hafa í samvinnu við samtökin gert könnun og unnið myndbönd um efnið sem sýnd verða á málþingi sem samtökin standa fyrir miðvikudaginn 28. mars á Grand hótel Reykjavík," segir í tilkynningu frá Barnaheillum. „Þá er hafin undirskriftasöfnun til að þrýsta á yfirvöld og aðra hlutaðeigandi að grípa til aðgerða hið snarasta. Undirskriftirnar verða afhentar velferðarráðherra á alþjóðlega tannverndardeginum, 12. september næstkomandi." Þá segir að þeir sem hlut eigi að máli þurfi að „sameinast um að finna leið út úr því öngstræti sem tannheilsa íslenskra barna virðist komin í. Það er ekki ásættanlegt að í upphafi 21. aldarinnar séu börn að fá panódíl fyrir svefninn svo þau geti sofnað fyrir tannverkjum." „Samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland hefur staðfest, eiga börn rétt á að njóta besta mögulegs heilsufars sem hægt er að tryggja, svo sem með læknisaðstoð og heilbrigðissþjónustu. Í 2. gr. sáttmálans er kveðið á um jafnræði og bann við mismunun, meðal annars á grundvelli félagslegrar stöðu. Þá er ábyrgð aðildarríkja þannig skilgreind að þeim beri að tryggja börnum þau réttindi sem barnasáttmálinn kveður á um eftir því sem þau framast geta auk þess sem ábyrgð foreldra er skýr." Málþing Barnaheilla - Save the Children á Íslandi fer fram miðvikudaginn 28. mars næstkomandi þar sem fjallað verður um tannheilsu íslenskra barna - sjá nánar á vef samtakanna barnaheill.is.
Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Fleiri fréttir „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Sjá meira