Margfaldur munur á gjaldtöku banka Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 19. mars 2012 19:00
Margfaldur munur er á gjaldtöku banka við skuldaraskipti á íbúðalánum, Landsbankinn rukkar minnst en Frjálsi fjárfestingarbankinn og Íslandsbanki innheimta prósentu af lánsupphæð. Talsmaður neytenda telur óeðlilegt að innheimta hlutfallsgjald af slíkri skjalagerð. Fólk sem er ósátt við gjaldtöku bankanna við ýmis konar skjalagerð leitaði til fréttastofu og taldi að óeðlilega há gjöld væru innheimt af ýmis konar skilmálabreytingum, m.a. vegna skuldaraskipta. En þau eiga sér stað þegar Jón kaupir íbúð af Gunnu og yfirtekur lán Gunnu þá þarf að skipta um nafn skuldara á skuldabréfinu. Slík breyting heitir skuldskeyting á bankamáli. Fréttastofa kannaði málið hjá bönkunum, sem allir birta verðskrár á heimasíðum sínum. Landsbankinn tekur 10 þúsund krónur fyrir slíka skuldaraskipti, Arion banki 15 þúsund krónur, Íslandsbanki tekur hins vegar hlutfall af lánsupphæð, eða 0,25%, að lágmarki 5000 krónur og sama hlutfall er hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum en þar er lágmarkið 10 þúsund krónur. Fréttastofa fékk afrit af svona skuldaraskiptum, sem staðfesta að Arion banki rukkar 15 þúsund krónur af nafnabreytingu sem er töluvert hagstæðara en fyrir þá sem tóku upphaflega lán hjá Frjálsa. Einn slíkur er rukkaður um 39 þúsund krónur fyrir slíka nafnabreytingu - og annar um hátt í 44 þúsund krónur sem er er fjórum sinnum meira en væri hann hjá Landsbankanum. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, sagði í samtali við fréttastofu að sér þætti ekki eðlilegt að rukka prósentutölu af lánsupphæð við skuldaraskipti, eðlilegast væri að innheimta fasta krónutölu í samræmi við kostnað bankans - sem sveiflist varla í takt við lánsupphæð.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Sjá meira