Endurteknar yfirlýsingar ráðherra um uppbyggingu ekki enn ræst Kristján Már Unnarsson skrifar 19. mars 2012 18:53
Samningi um kísilver á Suðurnesjum hefur verið rift en honum lýstu forystumenn ríkisstjórnarinnar sem mikilvægum skilaboðum um að menn hefðu trú á framtíðinni á Íslandi. Ítrekaðar yfirlýsingar ráðherra undanfarin tvö ár, um að Þingeyingar ættu að búa sig undir stórfellda atvinnuuppbyggingu, hafa heldur ekki ræst. Það ríkti bjartsýni við undirritun samnings um kísilver í Helguvík fyrir rúmu ári, þann 17. febrúar í fyrra. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sagði í Duus-húsi í Keflavík að samningurinn væri ísbrjótur í atvinnumálum Suðurnesja og fjármálaráðherrann þáverandi, Steingrímur J. Sigfússon, sagði samninginn skilaboð um að menn hefðu trú á framtíðinni á Íslandi. Ráðamenn kísilfélagsins, með bandaríska fyrirtækið Globe Speciality Metals sem aðalfjárfesti, ætluðu að hefja framkvæmdir í fyrravor en báðu reglulega um nýja fresti og fór svo að Landsvirkjun rifti samningum fyrir helgi vegna vanefnda. Þingeyingar bíða einnig eftir því að ítrekaðar yfirlýsingar ráðherra rætist, eins og þær sem Katrín Júlíusdóttir iðnaðaráðherra hefur gefið um að samfélagið þar ætti að búa sig undir stórfellda atvinnuuppbyggingu. Þessu lýsti hún fyrst yfir í viðtali á Stöð 2 í október 2010, og síðan ítrekað á Alþingi, bæði í mars og júní á síðasta ári, en þá sagði hún alveg ljóst að samkomulag um sölu orkunnar í Þingeyjarsýslum, við einn eða fleiri kaupendur, yrði gert á komandi mánuðum. Ekkert bólar enn á slíku samkomulagi. Fréttastofan hefur ítrekað leitað eftir viðtölum við ráðmenn Landsvirkjunar undanfarna daga um stöðu mála án árangurs. Ofangreindar yfirlýsingar ráðherranna má sjá í frétt Stöðvar 2.
Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira