Ætla að telja allar kanínur í Reykjavík Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 19. mars 2012 20:00 Þarna er allavega ein kanína.
Fyrsta almenna kanínutalningin fer nú fram í Reykjavík. Með henni á að reyna að finna út hversu margar villtar kanínur er að finna innan borgarmarkanna. Síðustu ár hafa kanínur sést í ríkara mæli á útivistarsvæðum í og við borgina. Reykjavíkurborg hefur lagt af stað með umfangsmikið verkefni til að komast að því hversu margar villtar kanínur eru í borgarlandinu. Talningin hófst í síðustu viku. „Þetta er sá tími ársins sem þær eru væntanlega í lágmarki. Nú hefur veturinn hoggið skörð í stofninn og þær eru ekki byrjaðar að fjölga sér enn, það fer að koma að því bráðum. Þetta er sá tími sem að við viljum sjá hvað er mikið af þeim," segir Arnór Sigfússon, deildarstjóri umhverfisdeildar Verkís. Talið er á þeim svæðum þar sem kanínurnar hafa helst haldið sig það er við Rauðavatn, Rauðhóla, Elliðavatn og í Elliðaárdal og einnig í Öskjuhlíðinni. Líffræðinemar sjá um talninguna en talið er snemma morguns við ljósaskiptin. „Þau ganga bara í rökkrinu með vasaljós og rólega og telja þær kanínur sem verða á vegi þeirra og merkja þær inn á kort. Út úr þessu reiknum við svo hvað er mikill fjöldi á kílómeter genginn," segir Arnór. Þetta er fyrsta almenna kanínutalninginn sem gerð er á öllu borgarsvæðinu. „Kanínur geta orðið vandamál í framtíðinni hér. Það er þekkt erlendis frá að þær hafi náð að fjölga sér og þær geta valdið tjóni á gróðri. Gera það á trjá og blómum og víðar, þar ekki vilji fyrir því að þær dreifi sér of víða," segir Arnór að lokum.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Innlent Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Innlent Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Erlent Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Erlent Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti Innlent Fleiri fréttir Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Sjá meira