Viðskipti innlent

Byggðastofnun lánaði 4,6 milljarða til ferðaþjónustu

Í árslok í fyrra voru heildarútlán Byggðastofnunar til fyrirtækja í ferðaþjónustu um 4,6 milljarðar kr. Þar af voru tæpir 1,4 milljarðar kr. til fyrirtækja í fjórum sveitarfélögum, Hornafirði, Mýrdalshreppi, Skútustaðarhreppi og Skaftárhreppi.

Þau ferðaþjónustufyrirtæki sem tekið hafa lán hjá Byggðastofnun eru dreifð vítt og breitt um landið en ekkert sveitarfélag hefur yfir 8% af heildarútlánum stofnunarinnar til ferðaþjónustu. Þetta kemur fram á vefsíðu stjórnarráðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×