Samstarf

Stjörnurnar nota NIP + FAB kremin

Charlize Theron.
Charlize Theron. Mynd/Getty
„Breska húðvörulínan NIP+FAB frá Rodial hefur algjörlega slegið í gegn og er sem dæmi notað af öllum helstu stjörnum Hollywood um þessar mundir, meðal annars leikkonunum Kristen Stewart, Kelly Brook og Charlize Theron og fleirum," segir Sesselja Sveinbjörnsdóttir, þjálfari hjá fyrirtækinu Forval, um bresku húðvörulínuna NIP+FAB sem hefur farið sigurför um heiminn.

Breska húðvörulínan NIP+FAB frá Rodial er náttúruleg og án allra parabena. Varan þykir bæði vönduð og ódýr. NIP+FAB hentar öllum húðgerðum.

Breska fyrirtækið Rodial stendur að baki NIP+FAB-línunni en það var stofnað af Mariu Hatzistefanis árið 1999. Hún kynnti merkið til sögunnar tveimur árum síðar eftir að hafa gert markaðsrannsóknir sem leiddu í ljós að brýn þörf var á vandaðri og ódýrri húðvörulínu.

„Niðurstaðan varð náttúruleg grunnlína án parabena bæði fyrir andlit og líkama sem gefur frábæran árangur," upplýsir Sesselja.

Allir geta notað NIP+FAB línuna segir hún og tekur dæmi. „Eitt kremið er "primer" fyrir andlitið. Yfirleitt er "primer" notaður yfir dagkrem og undir farða til að halda honum fullkomnum allan daginn. Sérstaða NIP+FAB "primers" er að það má nota hann einan og sér því hann gefur góðan raka og ljær húðinni fallegan og ferskan blæ. Silkimjúka áferð sem meira að segja karlmenn geta öðlast eftir rakstur."

Annað krem í línunni hefur ekki síður vakið athygli, svokallað "Bust Fix Gel" sem Sesselja segir gætt þeim eiginleika að móta og stinna brjóstin, styrkja brjóstasvæðið upp að hálsi og viðhalda fallegri brjóstaskoru, eitthvað sem allar konur dreymir um.

Þá segir Sesselja NIP+FAB klæðskerasniðið fyrir íslenskar aðstæður. „Línan er full af andoxunarefnum og styrkir náttúrulegar varnir húðarinnar. Hún veitir hins vegar ekki vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar enda þurfum við á þeim að halda á sumrin."

NIP+FAB

- líkamslínan er mjög virk og sýnilegur árangur kemur fljótt í ljós.

Tummy Fix: sléttur og flottur magi

Bust Fix: stinnari brjóst, flottari brjóstaskora

Cellulite Fix: slétt, stinn og fallegri húð

Útsölustaðir NIP+FAB

Reykjavík: Hagkaup; Kringla, Holtagarðar, Skeifan, Spöngin. Snyrtivöruverslun Hygea Kringla.

Verslanir Lyfju. Reykjavíkur Apótek.

Kópavogur: Hagkaup Smáralind, Snyrtivöruverslun Hygea Smáralind. Lyfja Smáratorg.

Garðabær: Hagkaup Garðabæ, Lyfja Garðatorgi.

Reykjanesbær: Hagkaup Njarðvík.

Akureyri: Hagkaup Akureyri, Betri Líðan.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×