Horft til bankakerfis Kanada 29. mars 2012 05:00 Steingrímur J. Sigfússon
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, vill efla stjórnmálaleg og viðskiptaleg tengsl Íslands og Kanada. Hann er nú staddur í Kanada til að ræða efnahagsmál við þarlenda ráðamenn og fundaði meðal annars með seðlabankastjóra og fjármálaráðherra Kanada í gær. Hann sagði fundina hafa verið afar gagnlega og telur ljóst að það sé áhugavert fyrir Ísland að byggja upp aukin tengsl við Kanada og horfa til þess fjármálakerfis sem þar er við lýði þegar tekin verður ákvörðun um framtíðarskipan íslenska kerfisins. „Það er óumdeilt að Kanada sigldi tiltölulega lygnan sjó í gegnum fjármálakreppuna og þeirra bankakerfi komst vel frá henni. Þeir hafa rekið íhaldsamt bankakerfi með ströngum reglum og stífu eftirliti og það hefur skilað sér. Þeirra bankar voru minna áhættusæknir og þar af leiðandi traustari. Það var því mjög áhugavert að skoða þeirra regluverk.“ Mikil umræða hefur verið um mögulega upptöku Kanadadollars hérlendis. Steingrímur segir það alls ekki hafa verið dagskrárefni þeirra funda sem hann átti með kanadískum ráðamönnum. Umræðuna hafi þó borið á góma. „En stjórnvöld beggja landa vita hvernig staðan er. Þetta var því ekki rætt í neinni alvöru og þetta var alls ekki dagskrárefni. Við fórum þó yfir hvernig mál standa hjá okkur, til dæmis varðandi afnám gjaldeyrishafta. Þeir fylgjast vel með því.“-þsj
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Sjá meira