Al Thani-málið tekið fyrir í dag 29. mars 2012 12:22 Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson er taldir hafa skipulagt Al-Thani fléttuna, en báðir eru ákærðir fyrir umboðssvik og þeir Ólafur og Magnús fyrir hlutdeild í brotum þeirra. Þá eru allir fjórir ákærðir fyrir markaðsmisnotkun.
Fyrirtaka í Al Thani málinu svokallaða verður fram haldið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Búist er við að Hreiðar Már Sigurðsson, Ólafur Ólafsson og Magnús Guðmundsson mæti fyrir dómara. Þegar málið var fyrst tekið fyrir í byrjun mars mætti enginn sakborninganna fyrir dóminn og gerði dómari athugasemd við það og krafðist þess að þeir skyldu allir mæta áður en málið yrði tekið fyrir. Fyrirtöku var því frestað til dagsins í dag en í millitíðinni, þann sextánda mars síðastliðinn mætti Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings fyrir dóminn og lýsti yfir sakleysi sínu. Lögmenn hinna sakborninganna sögðu að þeir hyggðust allir mæta í dag og taka afstöðu til ákæranna. Þá átti einnig að fjalla um kröfu verjanda að fá afrit af mynd- og hljóðdiskum með skýrslutökum sakborninga, því hefur hins vegar verið frestað á meðan beðið er niðurstöðu Hæsatréttar um mál sem tekur á sama efni. Ákæran í málinu beinist gegn fyrrverandi stjórnendum Kaupþings, þeim Hreiðari Má Sigurðssyni, Sigurði Einarssyni og Magnúsi Guðmundssyni auk Ólafs Ólafssonar. Málið snýst um kaup félags í eigu sjeik Al-Thani, bróður emírsins frá Katar, á 5 prósenta hlut í Kaupþingi fyrir rúmlega 25 milljarða króna rétt fyrir bankahrunið. Við rannsókn kom í ljós að kaupin voru að miklu leyti fjármögnuð með lánum frá Kaupþingi og er það mat sérstaks saksónara að um sýndarviðskipti hafi verið að ræða og þar með markaðsmisnotkun í skilningi laga um verðbréfaviðskipti. Þá telur saksóknari að lánveitingarnar vegna viðskiptanna falli undir umboðssvik. Brotin geta varðað allt að sex ára fangelsi og allt að níu ára fangelsi verði þeir sakfelldir og dómari ákveði að bæta við refsingu allt að helming hennar, en heimild er fyrir slíku í hegningarlögum.
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira