Jóhanna kenndi Jóni Bjarna um seinagang kvótafrumvarpsins 29. mars 2012 13:06
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sakaði Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, á Alþingi morgun um að hafa dregið það í nærri tvö ár að koma fram með frumvarp um breytingar á kvótakerfinu. Hann hafi verið seinn í allri vinnu og verið í litlu sambandi við aðra ráðherra um málið. Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, gagnrýndi kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar í umræðu um málið á Alþingi í gær og sagði að markaðssjónarmið skipuðu þar of mikinn sess. Því væri óvíst hvort hann gæti stutt málið. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, spurði forsætisráðherra um málið við upphaf þingfundar í dag. Jóhanna sagðist ekki hafa hlustað á ræðu Jóns. „Staðreynd málsins er sú, að við stöndum núna í lok kjörtímabilsins, þegar eitt ár er eftir, með fiskveiðistjórnunarfrumvarpið, komi hingað til þingsins eins og við viljum hafa það. Það er vegna þess að háttvirtur þingmaður Jón Bjarnason dró þetta mál og var seinn í allri vinnu með málið og hafði litla samvinnu við ríkisstjórnina í þessu máli," sagði Jóhanna á Alþingi í morgun. Jón Bjarnason greip þá framm í fyrir Jóhönnu og sagði: „Þetta er ósatt." Jóhanna hélt þá áfram. „Við þurftum að setja á sérstakar ráðherranefndir til þess að flýta þessu máli og það hefði eðlilegan gang, þannig að það stendur ekki steinn yfir steini í þessu." Jóhanna sagði að ábyrgð Jóns á stöðu málsins væri mikil. „Það er fyrst og fremst hægt að skrifa það á hans reikning hvað við erum sein með þetta mál á þessu kjörtímabili," sagði Jóhanna.
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Sjá meira