Svört álitsgerð LEX sýnir fram á fjöldagjaldþrot Höskuldur Kári Schram skrifar 24. apríl 2012 18:41
Í álitsgerðum lögmannsstofunnar LEX og endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte kemur fram að frumvörpin leiði til fjöldagjaldþrota og brjóti gegn stjórnarskránni. Álitsgerðirnar voru unnar fyrir Landssamband íslenskra útvegsmanna sem hefur ásamt Samtökum fiskvinnslustöðva og Samtökum atvinnulífsins sent atvinnuveganefnd Alþingis sameiginlega umsögn um kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar. Samtökin eru í öllum aðalatriðum ósammála efni frumvarpanna og leggja til að þau nái ekki fram að ganga. Samtökin telja ennfremur að frumvörpin muni kollvarpa rekstri sjávarútvegsfyrirtækja og færa umhverfi íslensks sjávarútvegs áratugi aftur í tímann. Í álitsgerð endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte er talið að hækkun veiðigjalds muni leiða til fjöldagjaldþrota innan greinarinnar. Af sjötíu og fimm sjávarútvegsfyrirtækjum sem álitsgerðin lagði mat á verða fimmtíu og þrjú gjaldþrota ef frumvörpin ná fram að ganga. Þar á meðal eru fyrirtæki á borð við Skinney Þinganes, Rammi ehf og Hraðfrystihúsið Gunnvör. Í álitsgerð LEX lögmannsstofu er talið að frumvarpið brjóti gegn stjórnarskránni. - þar segir meðal annars að fyrirliggjandi frumvörp skerði atvinnuréttindi núverandi handhafa aflaheimilda með ótvíræðum hætti og þá þannig að það fái ekki staðist eignaréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Atvinnuveganefnd Alþingis mun væntanlega ljúka umfjöllun um frumvörpin í byrjun næsta mánaðar en talið er líklegt að þau taki þó nokkrum breytingum í meðförum nefndarinnar.
Mest lesið Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Innlent Telur áform ráðherra vanhugsuð Innlent Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Erlent Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Erlent Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Innlent Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Innlent Þrjátíu handteknir í óeirðum í Hollandi Erlent Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Innlent Staða Framsóknarflokksins, afnám áminningarskyldu og Evrópumálin í Sprengisandi Innlent Efast um að olíuleit beri árangur Innlent Fleiri fréttir Hefur farið 100 sinnu á fjall á Fljótshlíðarafrétti Viðreisn verður áfram bara Viðreisn Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Sjálfstæð Palestína, væringar í Framsókn og fækkun um eitt sveitarfélag Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Staða Framsóknarflokksins, afnám áminningarskyldu og Evrópumálin í Sprengisandi Telur áform ráðherra vanhugsuð Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Sniðgangan friðsæl leið til að mótmæla og sýna samstöðu „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Fordæmalaust kynferðisbrotamál og viðbragð NATO við brölti Rússa Vill breyta nafni Viðreisnar Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Landsþing Viðreisnar hafið Peningakassa stolið af hóteli í miðbæ Reykjavíkur Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland rampar upp Úkraínu Drógu vélarvana togara í land Sjá meira