Uppteknir foreldrar vanrækja börn sín 2. maí 2012 13:30 Börn í vanda Dr. May Olofsson frá Danmörku og dr. Kari Killén frá Noregi eru aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni Foreldrar í vanda – börn í vanda sem haldin er í dag og á morgun. fréttablaðið/vilhelm
Foreldrar eru oft svo uppteknir af sjálfum sér og eigin vandamálum að þeir vanrækja samskipti við börn sín. Börn geta til dæmis búið við efnahagslegt öryggi en ekki fengið þau tilfinningalegu tengsl sem þau þurfa. Tilfinningaleg vanræksla getur leitt til þess að börnin þroskast seinna á ýmsum sviðum en önnur börn. Afleiðingarnar geta orðið alvarlegar og keðjuverkunin óheillavænleg. Þetta er meðal þess sem dr. Kari Killén mun fjalla um á námsstefnunni Foreldrar í vanda – börn í vanda á vegum Þerapeiu hf., Miðstöðvar foreldra og barna og Barnaverndarstofu sem haldin verður í dag og á morgun á Þjóðminjasafninu. Að sögn Killén, sem er yfirmaður rannsóknarstarfs stofnunarinnar NOVA (Norsk institutt for forskning om oppvekst, velferd og aldring) í Ósló, verður vanrækt barn, hvernig svo sem vanrækslan er, erfitt barn, eins og hún orðar það. „En það dugar ekki að segja foreldrunum hvað þeir eiga að gera. Það þarf að hvetja foreldra og hjálpa þeim að reyna að skilja barnið sitt. Ef um alvarleg tilfelli vanrækslu er að ræða er auðvitað skylda yfirvalda að grípa inn í.“ Kari Killén getur þess að þekkingin á málefninu sé mikil. Henni sé hins vegar ekki beitt eins og skyldi. „Það er stórt gap þar á milli. Það er nauðsyn á samvinnu þeirra sem starfa að þessum málum,“ segir hún. Á námsstefnunni mun dr. May Olofsson, yfirlæknir fjölskylduþjónustu Hvidovre sjúkrahússins og Ríkisspítalans í Kaupmannahöfn, meðal annars fjalla um hættuna á skaðlegum áhrifum áfengisneyslu verðandi mæðra á fóstrið, einkum á þroska heilans og miðtaugakerfisins. Olofsson segir að miðað við hversu mikil áfengisneysla danskra kvenna er eigi 2.200 börn á hættu að fæðast alvarlega sködduð, líkamlega og andlega, á hverju ári. „Skilaboð heilbrigðisyfirvalda um að konur eigi ekki að drekka á meðgöngu eru skýr. Tiltölulega margir læknar og ljósmæður fylgja hins vegar ekki tilmælum yfirvalda. Þekking þeirra á hættunni er ekki nægileg. Konur hafa greint frá því að læknar hafi sagt þeim að drykkja á meðgöngu sé í lagi.“ Olofsson tekur það fram að hættan á líkamlegri og andlegri fötlun barns vegna drykkju móður á meðgöngu sé fullsönnuð. Þetta sé skaði sem hægt sé að koma í veg fyrir.ibs@frettabladid.is
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Sjá meira