Viðskipti innlent

Dúkkulísurnar flytja fé til Vestfjarða

Magnús Halldórsson skrifar
Af vefsíðu Dressupgames.com.
Af vefsíðu Dressupgames.com.
Dress up games ehf., sem rekur Dúkkulísuvefinn Dressupgames.com, hagnaðist um 48,8 milljónir króna á síðasta ári, samkvæmt ársreikningi félagsins. Það er nokkru minna en árið 2010 en þá hagnaðist félagið um ríflega 88 milljónir króna.

Eigið fé félagsins nam 192 milljónum í lok síðasta árs. Eignir félagsins námu 257 milljónum króna og skuldir rúmlega 65 milljónum, þar af námu viðskiptaskuldir tæplega 50 milljónum króna.

Á síðustu þremur árum hefur félagið greitt 163 milljónir króna í arð til eiganda, líkt og Viðskiptablaðið fjallaði um á vefsíðu sinni í dag.

Eini eigandi Dress up games er Inga María Guðmundsdóttir, bókasafnsfræðingur á Ísafirði, en hún er jafnframt stofnandi og hugmyndasmiður vefsins.

Dressupgames.com er vinsæl vefsíða hjá ungum enskumælandi stúlkum víða um heim, en hún gerir börnum kleift að finna leiki á vefnum, sem ganga út á klæða dúkkulísur í föt. Vefsíðan fær milljónir innlita á hverjum mánuði.

Tekjur félagsins eru í formi auglýsinga, og er auglýsingviðmót Google, sem hangir saman við umferð á vefnum, þar langsamlega umfangsmest.

Dress up games ehf. hefur verið það félag á Vestfjörðum, á undanförnum árum, sem greitt hefur hvað mestan tekjuskatt fyrirtækja, þ.e. skatt af hagnaði.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×