Strákunum tókst ekki að klára leik fyrir myrkur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. október 2012 18:33 Haraldur Franklín Magnús. Mynd/GSÍmyndir
Íslenska karlalandsliðið í golfi sem skipað er þeim Axel Bóassyni GK, Haraldi Franklín Magnús GR og Rúnari Arnórssyni GK, náði ekki að ljúka leik í dag fyrir myrkur á öðrum hring á Heimsmeistaramóti áhugamanna í golfi sem fram fer í Antalya í Tyrklandi. Það voru þrumur og eldingar í upphafi annars keppnisdags og því frestaðist ræsing um sex klukkutíma í morgun. Axel var staddur á 18 flöt, Haraldur á 17 flöt og Rúnar á 17 teig þegar leik var frestað vegna myrkurs en þeir munu klára hringinn í fyrramálið. Axel Bóasson var í 62. sæti eftir fimmtán holur á einu höggi yfir pari samanlagt en hann var á þremur höggum yfir pari í dag. Haraldur Magnus var í 74. sæti á tveimur höggum yfir pari samanlagt en hann lék fyrstu fimmtán holurnar í dag á tveimur höggum undir pari. Rúnar Arnórsson var síðan í 139. sæti á átta höggum yfir pari samanlagt.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira