Allt fyrir karlmenn á einum stað 28. desember 2012 08:00 Ásta Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar segir árið hafa verið ævintýralegt enda var ferðamannaukningin mikil.
Be A Man var opnuð í brottfararverslun Fríhafnarinnar 21. desember síðastliðinn. Verslunin er sérstaklega ætluð körlum og fékk enskt nafn þar sem hún er starfrækt á alþjóðlegum flugvelli. "Verslunin er einstök að mörgu leyti. Í fyrsta sinn er öllum snyrtivörum fyrir karla komið fyrir á einum stað í umhverfi, sérhönnuðu fyrir karla. Þarna geta konur auðvitað verslað líka, eins og karlar gera í verslunum með vörur fyrir konur, en hugmyndin er að fólk þurfi ekki að fara um allt verslunarrými okkar til þess að leita að snyrtivörum fyrir karlmenn," segir Ásta Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar. "Það eru kynningar á öllum vöruflokkum hjá okkur allan ársins hring. Nýbreytnin er að karlmenn geta nú skoðað snyrtivörur á meðan þeir smakka á þeim tegundum sem verið er að kynna hverju sinni. Þjónustan er sú sama og verið hefur, en í breyttu, bættu og skemmtilegu umhverfi." Hún segir margt standa upp úr á árinu. "Það hefur nánast verið ævintýralegt fyrir margra hluta sakir og meginskýringin sú mikla farþegaaukning sem varð á árinu. Þá skiptir sköpum í rekstri sem þessum að vera með gott vöruúrval á réttu verði. Við berum okkur stöðugt saman við samkeppnisaðila okkar, sem fyrst og fremst eru flugvellir erlendis, og auðvitað í sumum tilvikum verslanir í erlendum borgum. Það sem við höfum þó hér á landi og er án efa okkar helsta samkeppnisforskot, er starfsfólkið. Ég þori nánast að fullyrða að þjónustan og þekkingin á þeim vörum sem við bjóðum upp á sé meiri hér en á nágrannaflugvöllum okkar." En það eru ekki einungis nýjar verslanir sem setja svip sinn á reksturinn. Vöruframboðið í Fríhöfninni hefur stóraukist að undanförnu og nú má finna mikið af vörum í flestum vöruflokkum sem finnast hvergi annars staðar hér á landi. "Eins leynast gullmolar innan um, eins og til dæmis í rauðvínum sem eru á svo hagstæðu verði að starfsmenn framleiðenda erlendis kaupa það í miklu magni þegar þeir eiga leið um hjá okkur. Það verður að teljast gott," segir Ásta Dís. Hún segir verðlagið í heildina afar hagstætt og að stöðugar verðkannanir haldi fólki við efnið. "Við heyrum ekki lengur kvartanir vegna verðlags á sælgæti, að það sé dýrara í Fríhöfninni en í ónefndum matvöruverslunum, enda höfum við lagt allt kapp á að vera afar samkeppnishæf hvað það varðar. Aðrir vöruflokkar hjá okkur eru þekktir fyrir lægra verðlag en gengur og gerist og við fáum oft á dag dæmi um það hversu hagstætt verðlagið sé orðið hjá okkur miðað við nágrannaflugvelli." Ásta Dís segir starfsfólk Fríhafnarinnar horfa fullt eftirvæntingar til nýs árs og hlakka til að takast á við þær áskoranir sem á vegi þeirra verða. "Við hjá Fríhöfninni óskum landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar."
Heilsa Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira